Framleiðsluár 2001
Leikstjóri-Steven Spielberg
Aðalhlutverk-Haley Joel Osement, Jude Law, Frances
O´conner og Jake Thomas


Ég sá þessa mynd um helgina og varð fyrir mjög miklum
vonbrigðum:( Hún fjallar um það að í framtíðinni er komið fullt
af vélmennum, það er einn vélmennadrengur sem er búin til
og er hannaður til þessa að geta elskað og verið mjög
raunverulegur. Fyrri parturinn var svona la la en svo þegar
þetta bull með þarna þetta fljúgandi tunglið og kallarnir á
mótorhjólonum komu var þetta svolítið öfgakennt! mér fannst
samt hann Haley Joel Osement leika þetta bara vel til dæmis
þarna þegar mamman forritar hann og hann svona breytist
bara click! Það var vel leikið. En samt var myndin alveg
ágætlega vel gerð og ég myndi gefa tæknibrellunum
svona*** stjörnur. En ég segi bara við ykkur að ég myndi
ekkert vera að taka þessa mynd! Takið bara Leprechaun!
..::darkjesus::..