Tiger Woods er með þriggja högga forystu eftir fyrri hringinn á PGA Grand Slam mótinu í Hawaii, en þar mætast fjórir sigurvegarar PGA-risamótanna. Tiger, sem vann á Masters og Opna breska, lék hringinn í gær á 67 höggum. Phil Mickelson, sem sigraði að PGA-meistaramótinu, lék á 70 höggum. Ný-Sjálendingurinn Michael Campbell, sem sigraði á Opna bandaríska, lék á 73 höggum og Vijay Singh, sem er annar á heimslistanum og vann PGA-meistaramótið í fyrra, lék á 75 höggum. “Ég varð að reyna að...