Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

bonobo
bonobo Notandi frá fornöld 1.158 stig

Natalie Portman (7 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Natalie Portman er leikkona sem er á sannri uppleið. Ég átti leið framhjá einni aðdáendasíðunni með henni og ákvað að deila með ykkur nokkrum upplýsingum sem ég fann um hana. Nafn: Natalie Portman. Reyndar er Portman sviðsnafn sem hún fékk frá ömmu sinni en ekki er vitað alvöru eftirnafn hennar. Fæðingardagur: 9. júní 1981. Fæðingarstaður: Jerúsalem, Ísrael. Hæð: 163 cm. Þyngd: 114 lbs (hvað sem það þýðir) Háralitur: Brúnn, er með náttúrulegt krullað hár. Augnalitur: Brúnn. Tungumál sem hún...

Colin Hanks (10 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Myndina Orange County sá ég ekki alls fyrir löngu og sá þá leikarann Colin Hanks. Hann lék aðalhlutverkið, rithöfundinn Shaun Brumder sem var að reyna komast í ákveðinn háskóla en komu upp ýmis vandamál og get ég ekki annað sagt en að þessi mynd var bara nokkuð góð. Þessi leikari er ansi áhugaverður (að mínu mati) vegna þess að hann er sonur stórleikarans Tom Hanks. Nú er spurningin, er hann frægur út af því að hann hefur leikhæfileika eða bara af því hann er sonur Tom? Ja, ég get nú ekki...

Mary-Kate and Ashley Olsen (25 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Mary-Kate og Ashley Olsen Olsen tvíburarnir hafa nú náð miklum vinsældum í bandarískum barna- og unglingamyndum. Þær eru nánast alveg eins en venjulega er ein (Mary-Kate) með slétt hár og önnur (Ashley) með liðað. Bara til þess að hjálpa fólki að þekkja þær í sundur. Ég hef nú svolítið fylgst með þeim og séð tvær eða þrjár myndir með þeim og þær eru bara prýðisgóðar leikkonur. Það hefur verið gefinn út tölvuleikur með þeim og eiga þær semsagt að vera einhverjar súperhetjur í því :o) Hér koma...

Jesse Bradford (6 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Jesse Bradford Fullt nafn: Jesse Watrouse. Fæddist: 28. maí 1979. Ólst upp: Norwalk, Connecticut, USA. Menntun: Brien McMahon High School (’96) og er núna í Columbia University. Hæð: 170 cm. Safnar: Kveikjurum (á 400, reykir samt ekki.) Hefur æft: Karate. Uppáhalds leikari: Kevin Spacey, Peter Sellers, John Malkovich og Annette Bening. Celebrity Crush: Módelið Trish Goff. Hljóðfæri: Gítar (segir að hann myndi vilja vera rokkstjarna ef hann væri ekki leikari.) Hlustar á: Blús, rokk, jazz,...

Mena Suvari (7 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Mena Suvari Ég var að horfa á American Pie í gær (svo langt síðan ég hef séð hana) og mundi þá eftir þessari leikkonu. Ég vissi aldrei hvað hún hét eða neitt, hafði bara séð hana í nokkrum unglingamyndum, t.d. American Pie og Loser. Það sem er svolítið skondið að Jason Biggs lék með henni í báðum myndunum. Reyndar hef ég ekkert heyrt um hvort þau séu eitthvað að dúlla sér saman en það er annað mál. Ég fór og kynnti mér aðeins þessa leikkonu. Og hér koma niðurstöðurnar. Fullt nafn: Mena...

Ástarsaga... eða? (25 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hún barðist á móti vindinum. Hann var kraftmikill og ætlaði ekki að láta undan. Hún gerði allt sem hún gat til að komast áfram og eyddu öllum sínum kröftum í það, en stóð á sama stað. Henni fannst eins og alltaf væri rok, alltaf væri vont veður. Vonda veðrið bjó hjá henni. Það var komin helgi og þegar hún loks komst heim til sín eftir langan skóladag lagðist hún upp í rúm og hvíldi sig. Hún hafði enga löngun til að tala við neinn. Svo datt henni í hug. Afhverju ekki bara að fara út og gá...

Thomas Ian Nicholas (11 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Thomas Ian Nicholas Thomas Ian Nicholas er þekktastur fyrir að leika í myndunum American Pie I og II. Mér finnst hann vera nokkuð skemmtilegur leikari og sætur. Hann fæddist þann 10. júlí 1980 sem gerir hann 23 ára. Hann ólst upp í Las Vegas, Nevada í Bandaríkjunum. Thomas vissi alltaf að hann myndi verða leikari og byrjaði ferilinn sinn þegar hann var sjö ára. Þá lék hann Tony Danza í myndinni Who’s The Boss árið 1984. Eftir það hefur hann t.d. leikið í Party of Five þáttunum og...

Embeth Davidtz !!!!!!!! (5 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Embeth Davidtz Embeth Davidtz er nokkuð skemmtileg leikkona og er maður alveg farinn að þekkja andlitið á henni þó það sé svolítið erfitt að muna nafnið hennar. Við flest sáum hana kannski í Bridget Jones’s Diary, Bicentennial Man eða 13 Ghosts.. En að mínu mati er hún mjög góð leikkona og falleg :) Hér koma nokkar staðreyndir um hana. Fæddist: 1. janúar 1966 í Indiana. Aldur: 37. Ólst upp: Í New Jersey en flutti til S-Afríku þegar hún var 9 ára. Menntun: Rhodes University (lærði leiklist.)...

Charlie Hunnam (17 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Charlie Hunnam Þið munið kannski eftir honum í þáttunum Undeclared, sem voru sýndir á Stöð 2 á síðasta ári (held ég). Þar lék hann Lloyd Haythe, breska kvennagullið. Nú hefur hann verið að leika á fullu og nýjasta mynd hans heitir Cold Mountain og kemur hún út á þessu ári. Áður en hann lék í Undeclared þá lék hann aðallega í sjónvarpsþáttum, eins og My Wonderful Life og What Happened to Harold Smith en þessir þættir hafa ekki verið sýndir á Íslandi, trúlega bara í Englandi. Charlie fæddist...

Cameron Diaz (10 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Cameron Diaz fæddist í San Diago, Kalíforníu þann 30. ágúst 1972. Hún hætti í skóla 16 ára til að verða módel. Næstu fimm árin var hún að ferðast um heiminn þar sem hún vann t.d. í Japan, Ástralíu, Mexíkó, Morokkó og Frakklandi. Umboðsskrifstofan hennar, Elite Agency gaf henni ýmis störf við auglýsingar fyrir Coke, Nivea og L.A. Gear. Hún fór aftur til Kaliforníu þegar hún var 21 árs og var alveg óþekkt í kvikmyndabransanum þegar hún fékk hlutverk í myndinni The Mask til að daðra við Jim...

Let Go - Avril Lavigne (16 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já, ég á diskinn Let Go með Avril Lavigne og mér finnst hann mjög góður. Hann er fjörlegur og rokkaður ásamt einhverju poppi auðvitað. Ég ætla aðeins að lýsa honum og segja hvað mér finnst um lögin á disknum. 01. Losing Grip Þetta er nokkuð gott lag, það byrjar með orðunum „are you awair of what you mean to me.“ Textinn er nokkuð djúpur og svo þegar viðlagið kemur er það mjög rokkað, allavega á stelpulegan hátt ;) Einkunn: 8,5 02. Complicated Allir þekkja þetta lag og er þetta auðvitað með...

Jewel (6 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já, söngkonan Jewel er ansi skemmtileg. Hún skrifar tónlistina sína sjálf og spilar á gítar. Tónlitin hennar er svolítið country, svolítið svona rólegt og ég elska diskana hennar. Þeir svona róa mann frá öllun poppi og rokki í heiminum. Maður fer svona niður á jörðina eða upp í himinn þegar maður hlustar á hana… eða hvað, ég veit ekki. Allavega hér eru smá … eða svoldið miklar upplýsingar um hana. Jewel Kilcher fæddist þann 23. maí 1974 í Utah í Bandaríkjunum, en ólst upp í bænum Anchorage í...

Blue (17 álit)

í Popptónlist fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Blue er hljómsveit sem er svona venjulegt boyband. Ég man að mér fannst fyrsta lagið þeirra flott en nú er mest bara rólegt í gangi hjá þeim þannig ég hef ekkert mikið fylgst með þeim. Nú á Popptíví er alltaf verið að spila lagið „Seems To Be The Hardest Word“ þar sem þeir syngja með Elton John en hann gerði þetta lag frægt á sínum tíma. Ég fór á aðal Blue síðuna og fann smá upplýsingar um drengina sem ég vona að ykkur líki :) Antony Daniel Costa Háralitur: Dökk brúnn. Augnlitur: Dökk brúnn....

Craig David (4 álit)

í Popptónlist fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Craig David Craig David hefur verið svolítið í sviðsljósinu og er nú er á fullu verið að spila nýja myndbandið hans „What’s Your Flava.“ Ég fór í Japis fyrir nokkrum vikum og sá nýja diskinn með honum „Slacker Then Your Average“ og ákvað að hlusta á hann. Fyrst kom þetta lag „What’s Your Flava“ og mér leist ekkert of vel á þetta en svo hefur maður vanist þessu lagi. Ótrúlegt en satt. Byrjum á byrjuninni. Hann fæddist í Southampton í Englandi 5. maí 1981 og varð DJ 14 ára á útvarpsstöð þar í...

Samantha Mumba (3 álit)

í Popptónlist fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Samantha Mumba er á byrjunarstigi í poppbransanum. Hún hefur reyndar verið í honum lengi en hún er á byrjunarstigi sem frægur poppari. Mig langaði eitthvað að fara að skrifa og þá kom söngkonan upp í huga og ég ákvað bara að skrifa um hana! Nafn: Samantha Tamania Anne Cecilia Mumba. Fæddist: 18. janúar 1983. Hæð: 170 cm. Háralitur: Brúnn. Systkini: Yngri bróðir, Omero. Ólst upp: Dublin, Írlandi. Uppáhalds hlutir: GSM síminn, tyggjó og fartölvan sín. Samantha var í skóla sem heitir Billie...

Eva Cassidy (11 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég var í bíltúr með elskulegum foreldrum mínum í dag. Það var stillt á útvarpið og örugglega á Rás 2 eða eitthvað álíka. Ég hlusta nú ekki mikið á þá rás en í rauninni hlusta ég ekki mikið á útvarp. Bara svona stundum. Svo kom lag og ég kannaðist alveg við það en bara í annarri útgáfu. Það hét Time After Time. Ég man eftir að hafa heyrt það í myndinni Romy and Micheller Highschool Reunion. En þarna var það, já rólegra, svona acoustic vergion og hún sem söng lagið var söngkona að nafni Eva...

Anne Hathaway (6 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jæja, nú skrifa ég enn aðra greinina. Ég hef verið ansi dugleg við þetta núna undanfarið og auðvitað held ég áfram ;) Ég keypti mér um daginn DVD myndina Princess Diaries. Hún er algjör unglingamynd og nokkuð góð að mínu mati. Framleidd af Disney og svona ;) Já, semsagt, ég kannaðist alveg við aðalleikkonuna í myndinni og þekkti hana strax úr sjónvarpsþáttunum Get Real sem voru sýndir á SkjáEinum. Þeir voru nú ágætir en oft aðeins og dramatískir. Samt fannst mér leikkonan alltaf góð en hún...

Rachael Leigh Cook (12 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Rachael Leigh Cook er ung leikkona á uppleið. Ég sá hana síðast í Josie and the Pussycats í sjónvarpinu um daginn og fannst hún mjög góð. Og ekki er hægt að kvarta undan leikhæfileikum Rachael því hún hefur allt til að vera góð leikkona í Hollywood. Ég varð bara að skrifa smá grein um hana. Hún er líka ansi forvitnileg. Þar sem mér finnst þægilegra að lesa greinar þar sem er sagt frá staðreyndum persónunar og svona aðalatriðin þá ætla ég einmitt að gera það ;) Svo er ég nokkuð viss um að...

Kirsten Dunst (29 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Kisten Dunst Kisten Dunst hefur verið að gera það gott þessa dagana og er svo sannarlega búin að hasla sér völl í stóru Hollywood kvikmyndunum þó hún er aðeins 20 ára gömul. Ég man eftir að hafa séð hana fyrst í Strike og svo í Small Soldiers þegar hún var 16 ára. Sem segir það auðvitað að hún byrjaði ung að leika í myndum. Mínar uppáhalds myndir með henni (sem ég hef séð) eru: Bring It On, crazy/beautiful, Get Over It og Spider-Man. Hér koma nokkrar staðreyndir um hana: Fullt nafn: Kirsten...

Christina Ricci (9 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Christina Ricci Leikkonan Christina Ricci er ansi áhugaverð og sáum við hana kannski flest í þáttunum Ally McBeal þar sem hún hressti vel upp á lögfræðistofurnar! Hún hefur auðvitað leikið í öðru og muna líka margir eftir henni í The Adams Family og Casper sem við flest horfðum á þegar við vorum yngri en hér koma smá upplýsingar hana. Fæddist: 12. febrúar 1980 í Santa Monica, Kaliforníu. Hæð: 165 cm Augnalitur: Grágrænn. Menntun: Professional Children’s School, New York. Kærasti: Matthew...

Vinkonan sem flestar stelpur eiga... (8 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já, ég skrifaði þessa sögu fyrir löngu (svona ári) og skrifaði hana því ég var eiginlega svoldið pirruð útaf “vinkonu minni.” Það er eiginlega það eina sem á við mig í sögunni ;) En ég gerði eiginlega engann sérstakan endi þannig þið skuluð bara ýminda ykkur hann! ;) Vinkonan sem flestar stelpur eiga… Sigríður íslenskukennari gekk út úr stofunni og komið var að stærðfræði. Ég tók fram bókina og fletti upp á blaðsíðu 165. Ohh, Algebra. Ég skildi aldrei neitt í því. Gunni stærðfræðikennari var...

Skólinn byrjar aftur... (20 álit)

í Skóli fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já, skólinn er svo sannarlega byrjaður. Ég er nú enn í grunnskóla en lýk honum í vor. Svo trúi ég ekki að ég ætla að neyða mig í framhaldsskóla en ekkert annað er hægt. Annars er maður bara lúser að vinna í fiski. Ég vil það ekki, og það vill trúlega enginn. Samræmduprófin nálgast og er maður stressaður? Já, auðvitað! Það er líka bara sagt þetta við mann á hverjum degi. Eða allavega við bekkinn: „Ætlið þið ekki að ná samræmdu prófunum? Þá verði þið að fara læra heima!“ Hehe, þetta er sagt á...

Hera - Not Your Type (10 álit)

í Popptónlist fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Já, ég fékk nýjasta diskinn hennar Heru í jólagjöf þannig ég var bara að pæla í að skrifa svolítið hvað mér finnst um hann. 1. Not Your Type Þetta lag finnst mér ekki með þeim bestu á plötunni. Það er svona uppreisn hjá Heru í laginu og er ekki líkt hinum lögunum á plötunni. Það er samt alveg ágætt. Einkunn: 6.0 2. Naughts and Crosses Þetta er svolítið skrítið lag. Það er notað mandólín í því og gerir þá lagið svona þjóðlagalegt. Textinn er um konu í svörtu gegn konu í hvítu. Kannski þýðir...

Halle Berry (17 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Halle Maria Berry fæddist þann 14. ágúst 1966 og ólst upp í Cleveland, Ohio í Bandaríkjunum með móður sinni, Judy og eldri systur, Heidi. Foreldrar hennar skildu þegar hún var ung. Þó systurnar tvær áttu erfiða æsku og ólust upp í fátækt báru þær alltaf höfuðið hátt og voru duglegar í skóla og í ýmsum störfum tengt skóla. Halle var í skóla sem kallast Bedford High og þar var hún klappstýra, bekkjarforseti og stjórnaði tískudálki í skólablaðinu. 1.70 á hæð og mjög falleg var Halle send í...

Tiijavi (16 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Tiijavi tók saman draslið og gekk út. Kvefaður gekk hann meðfram húsaröðunum þar sem gamla bakaríið stóð. Hann stoppaði fyrir framan gluggann. Hann horfði á alla snúðana, vínarbrauðin og kökurnar. Sumar voru með súkkulaði og sumar með glassúri. Bara ef hann ætti pening fyrir einum snúð. Þeir voru svo girnilegir. Mamma hans myndi aldrei gefa honum pening. Hún hefur aldrei gert það og mun aldrei gera það. Gaf alltaf bara Magga og Sigga, dekruðu tvíburunum. Hann var örugglega skírður Tiijavi út...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok