Natalie Portman Natalie Portman er leikkona sem er á sannri uppleið. Ég átti leið framhjá einni aðdáendasíðunni með henni og ákvað að deila með ykkur nokkrum upplýsingum sem ég fann um hana.

Nafn: Natalie Portman. Reyndar er Portman sviðsnafn sem hún fékk frá ömmu sinni en ekki er vitað alvöru eftirnafn hennar.

Fæðingardagur: 9. júní 1981.

Fæðingarstaður: Jerúsalem, Ísrael.

Hæð: 163 cm.

Þyngd: 114 lbs (hvað sem það þýðir)

Háralitur: Brúnn, er með náttúrulegt krullað hár.

Augnalitur: Brúnn.

Tungumál sem hún talar: Enska, hebreska, franska, japanska.

Menntun: Útskrifaðist með A í öllu úr skólanum Long Island High School og svo er hún núna í Harvard.

Áhugamál: Dansa (ballett, jazz, tappdans), lestur, skriftir, skautar, módelast og að leika.

Hún langar að verða margt, t.d. læknir, dýralæknir, geimfari, dansari á Broadway, rithöfundur, leikari og fl.

Hvernig byrjaði þetta svo allt?
Hún var uppgötvuð þegar hún var 11 ára að módelast. Þá fékk hún sér umboðsmann fyrir leikferilinn sem var að fara byrja og fyrsta myndin sem hún lék í var The Professional. áður en hún byrjaði að leika í kvikmyndum þá lék hún í mörgum leikritum líka ;)

Aðrar staðreyndir:

* Hún er grænmetisæta og hefur verið það síðan hún var 8 ára.
* Hún spilar oft fótbolta með vinum sínum.
* Hún elskar súkkulaði.
* Á hund sem heitir Noodles.

Uppáhalds:

-matur: Pizza, súkkulaði, te, ís.
-sjónvarpsþættir: Friends, Ellen, Dawson's Creek, Jerry Springer.
-leikkona: Jennifer Gray, Julia Roberts.
-tónlistarmenn: Björk, PJ Harvey, Alanis Morrisette, Radiohead, Portishead, Moby og fl.