Það er rétt sem komið hefur fram að bókin var þýdd á sínum tíma og heitir Eymd (ekki Eymnd). Ég tek heilshugar undir það að bókin er frábær. Mér finnst hún í hópi bestu bóka King, þó eru bækur eins og Christine, Græna mílan, Umsátur og Shawshank fangelsið enn betri að mínu mati. Til upplýsinga þá hafa eftirfarandi bækur verið þýddar eftir Stephen King á íslensku: Visnaðu (Thinner), Eymd (Misery), Eldvakinn (Firestarter), Umsátur (Cujo), Uppreisnin (The Rage), Duld (The Shining),...