Sá er þetta ritar hefur verið aðdáandi Stephen King til margra ára. Hann er þeirra skoðunar að King sé að gera rétt. Ástæðu þess telur hann vera þá að King hefur nokkuð förlast síðustu misseri, sbr. bækur eins og Örvænting, Árásin og Draumagildran, sem eru að hans mati slakar, að minnsta kosti er þær eru bornar saman við sögur eins og Græna mílan, Eymd, Öndunaraðferðin, Bókasafnslöggan, Shawshank-fangelsið, Cujo, Christine, Shining, Rose Madder o. fl.