Hættu að leita! Eins og svo margt annað sem er týnt þá kemur ástin þegar maður er hættur að leita og býst síst við henni. Ef maður er ekki að leita þá líður manni líka betur milli sambanda. Svo er hözl ekkert góð byrjun á sambandi. Hözl er leið til að ná sér í “ódýrt” kynlíf, sem getur svo sem verið ágætt endrum og sinnum. En ef þú villt gott, varanlegt samband þá eru þau helst að finna með manneskju sem þú þekkir eitthvað fyrir. Þá byggist aðlöðunin líka vonandi á meira en líkamanum, sem er...