Jörg Haider sem er fyrrverandi formaður nasistaflokksins í Austurríki hefur hætt öllum afskiptum af stjórnmálum. Þetta stóð í frétt á mbl.is fyrir skömmu. Jörg Haider komst í fyrst í fréttirnar árið 1999 þegar öfgasinnaður flokkur hans Frelsisflokkurinn komst í ríkisstjórn Austurríkis og þá var hann fyrsti nasistaflokkurinn til að komast í ríkisstjórn síðan hryllilegur flokkur Adolfs Hitlers var unninn í stríðinu sem endaði 1945.

Frelsisflokkurinn var öfgasinnaður og vildi banna útlendingum að komast til landsins og hann braut gegn lýðræðisreglum þanning að ESB neyddist til þess að beita viðskiptaþvingunum til þess að koma þessum öfgasinnum frá völdum. Frelsisflokkurinn var viðvörun til Evrópubúa um nasisma sem er byrjaður að birtast hjá mönnum sem ganga í venjulegum fötum og þykjast vera föðurlandssinnar til þess að ná völdum út af fólk vill ekki kjósa menn sem ganga um í nasistabúningum lengur. Margir nasistaflokkar hafa verið að ganga vel í Evrópu og við verðum að vera betur á verði til að láta ekki menn sem þykjast vera föðurlandssinnar en eru síðan bara nasistar gabba okkur. Það þarf ekkert að fækka innflytjendum út af því að það hefur verið passað og haft eftirlit með þeim svo að ekki komi of margir eins og rasistaflokkarnir segja. Það er líka almennt talið að innflytjendurnir hafi auðgað tilveruna og löndin sem þeir hafa komið til svo við þurfum ekkert á föðurlandssinnum eða rasistum að halda til þess að fækka innflytjendum.

Jörg Haider þóttist alltaf vera föðurlandssinni en hann var samt bara nasisti eins og þessir föðurlandssinnar eru alltaf. Haider er þekktastur fyrir gyðingahatur, afneitun á helförinni(sem er sönnuð), og að afsaka nasista.

Jörg Haider var fæddur 1950 og mamma hans og pabbi höfðu verið nasistar í einhverjum mismunandi nasistaflokkum. Jörg Haider lærði nasismann líklega hjá foreldrum sínum.

Vitleysan í Jörgi Haider er þannig að hann kennir innflytjendum um allt slæmt sem gerist í landinu sínu og eykur þannig útlendingahatur hjá fólkinu sem trúir honum. Hann sagði líka að það væri enginn gróði í að fá útlendinga til landsins. Haider hefur líka sagt að fjölþjóðasamfélagið sé hafi ekki verið nógu gott. Samt eru flestir sammála um að það sé gott. Haider hefur líka sagt að waffen ss hafi verið “heiðvirðir” menn og hann hefur líka tekið í hendurnar á mörgum slíkum fólum. Hann hefur ekki viljað viðurkenna stríðsglæpi Þjóðverja og sagt að hinir hafi verið jafn vondir.

Haider hefur sagt formann austurríska gyðingasamfélagsins vera “skítugan” og hann hefur barist gegn því að Austurríkismenn borguðu gyðingum bætur vegna helfararinnar.

Flestir sem styðja Haider eru menn sem eru í nýnasistaflokkum eða þá menn sem hafa átt erfitt í lífinu. Flestir stuðningsmenn hans eru líka gyðingahatarar og neyta helförinni(sem er sönnuð).

Haider barðist gegn því að Simon Wiesenthal nasistavieðari yrði gerður að heiðursborgara í Austurríki.

Þessi flokkur Haiders hefur sýnt að í Evrópu er ekki nógu mikið umburðarlyndi og of mikið hatur er gegn útlendingum. Rasismi er enn í Evrópu og það var sannað þegar hellingur af fólki kaus þennan ólýðræðislega rasistaflokk. Það verður að berjast gegn þessum rasisma á allan hátt og passa að svona vondir flokkar og illmenni eins og Haider geti ekki komist til valda aftur.

Ég er glaður að Haider er hættur í stjórnmálum og ég vona bara að fólk hætti að kjósa svona rasistaflokka sem mismuna fólki eftir kynþáttum eða þjóðernum.

Fjölþjóðsamfélagið er það sem við viljum öll og við megum ekki láta “föðurlandssinna” eins og Haider og hans líka stöðva okkur í að hafa frið og fjölbreytni í samfélögum okkar!