Ok málið er þannig að ég er ósköp venjulegur, góður og skemmtilegur strákur en ég get ekki reynt við stelpur.
Í þau fáu skipti sem ég fer á djammið þá lendi ég í því að ef ég ætla að fara að tala við stelpur þá endar það með því að einhver tjokko gaur er kominn og eyðileggur allt. Maður virðist ekki eiga sjens í þessa viðurstyggilegu gaura. Hvað er málið, falla stelpur fyrir þessu fronti sem þeir bera. Þarf ég að breytast í tjokko til að ná mér sjálfstraust og þarf að leiðandi stelpu. Ég er búinn að þróa mikla feimni við stelpur og mér stendur bara ógn af þeim.
Allir vinir mínir segja bara að ég þurfi að sýna meira sjálfsöryggi en málið er að ég var ekki feiminn þegar ég var yngri og reyndi við stelpur sem ég var hrifinn af en var alltaf svo heppinn að fá neitun. Núna þá er ég orðinn leiður á að fara að djamma og upplifa þá komplexa um hvort ég eigi að tala við þessa eða ekki!!
Ég er einmitt þessi gaur sem stelpur líta á sem vin og and apparently I allway finish last.
Hvað er til ráða????????????