Myndin var ágætis skemmtun, mikil hasar og læti - en djöfulsins viðbjóður er þetta ameríkuþjóðerniskjaftæði - Bandaríkjamenn gerðir að gríðarhetjum og áhorfendur látnir finna til með þessum greyjum sem drápust - og það er ekki einu sinni eins og þeir hafi verið að verjast, það voru þeir sem réðust inn í borgina. Bandaríkjamönnum þótti hræðilegt að 19 stoltar hetjur og bandarískir hermenn féllu… en takið eftir; 1000 Sómalir drápust!!! og hvað með þá? Skipta þeir engu máli, eru þeir einskis...