Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

besser
besser Notandi frá fornöld 48 stig

Jakarnir? (6 álit)

í Hokkí fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eru Jakarnir ekki lengur til?

Kvennaleikurinn (12 álit)

í Hokkí fyrir 23 árum, 9 mánuðum
“Tekið af icehockey.is” “Í gærkvöldi mættust kvennalið Bjarnarins og SA í æsispennandi viðureign í skautahöllinni í Laugardalnum. Rakel Gunnarsdóttir kom Bjarnarstúlkum yfir eftir sendingu frá Sigrúnu Agötu strax á 4. mínútu og reyndist þetta eina mark lotunnar þrátt fyrir góð marktækifæri á báða bóga. Í 2. lotu var áfram allt í járnum en SA-stúlkum tókst svo að jafna á 14. mínútu lotunnar en þar var að verki Sólveig Smáradóttir. Rúmri mínútu síðar náði Flosrún Vaka aftur forystunni fyrir...

Björninn vs SA um næstu helgi (5 álit)

í Hokkí fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jæja góðir hálsar. Nú mætast Björninn og SA um næstu helgi - hvernig spáið þið leiknum. Björninn hefur unnið í síðustu tvö skipti en SA vann síðast einhvern tíma í október. Er þetta búið hjá norðlendingum eða eru þeir rétt að byrja?

Landliðsæfingar!!! (2 álit)

í Hokkí fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Halló - eru þið búin að sjá á www.icehockey.is? Það verða landsliðæfingar hjá U18 í næstu viku og fullorðinsliðinu eftir tvær vikur. Hvað haldið þið - ætli einhverjir detti út úr senior liðinu frá því í fyrra og ætli einhverjir nýjir komi inn?

Kannanir? (9 álit)

í Hokkí fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hvað er málið með að fæstir telja að Skautafélag Akureyrar verði Íslandsmeistarar? Það var ekki verið að spurja hvaða lið fólk VONAÐI að myndi vinna þetta - heldur hverjir myndu vinna þetta. Telja sem sagt 38% þeirra sem sækja þetta áhugamál miklu meiri líkur á því að Björninn, sem n.b. hefur aldrei unnið og er í neðsta sæti deildarinnar, vinni deildina en SA sem eru ekki bara efstir í deildinni heldur hafa einnig unnið þetta blessaða Íslandsmót 9 eða 10 sinnum?

Hvað fannst ykkur um streethokkímótið? (17 álit)

í Hokkí fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Jæja þá er fyrsta götuhokkímótinu lokið. Þið sem með því fylgdust endilega látið ykkar álit í ljós - hvernig fannst ykkur skipulagið, aðstaðan og liðin. Hverjum höfðu þið spáð sigri og komu úrslitin ykkur á óvart? Hvað er t.d. að gerast þarna fyrir norðan, af hverju eru þeir svona góðir? …á svo ekki að halda fleiri mót?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok