Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

besser
besser Notandi frá fornöld 48 stig

Jafnt á vesturströndinni (3 álit)

í Hokkí fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Colorado sigraði Detroit með 3 mörkum gegn 2 í 4. leik liðanna á aðfaranótt sunnudagsins og jafnaði þar með vesturstrandar einvígið, 2 - 2. Mörk Colorado skoruðu Steven Reinprecht, Joe Sakic sitt 9. mark í úrslitakeppninni og Chris Drury eftir sendingu frá Forsberg. Colorado komst í 3 - 1 en fyrsta mark Detroit skoraði Sergei Federov og Brett Hull bætti við öðrum marki þegar um 3. sekúndur voru eftir af 3. lotu en það kom of seint því Detroit hafði ekki tíma til að jafna. Patrick Roy varði...

Carolina Hurricanes komið í góða stöðu (3 álit)

í Hokkí fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Carolina Hurricanes leiðir nú í einvígi austurstrandarinnar gegn Toronto Maple Leafs eftir sigur í 4. viðureign liðanna og jafnframt í þriðja skiptið í röð. Toronto vann fyrsta leikinn, þá án fyrirliða síns, hins sænska Mats Sundin, en síðan hann kom aftur í hópinn hefur allt gengið á afturfótunum og þrír leikir tapast. Carolina er aðeins einum sigri frá því að komast í úrslit NHL gegn annað hvort Detroit Red Wings eða Colorado Avalanche og yrði það í fyrsta skiptið í sögu félagsins....

Red Wings ná forystunni (5 álit)

í Hokkí fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Detroit Red Wings sigraði Colorado í 3. leik liðanna í nótt með tveimur mörkum gegn einu þar sem Fredrik Olausson skoraði sigurmarkið á 13. mínútu bráðabana eftir stoðsendingu frá Yzerman og engum öðrum en Dominik Hasek, sem fyrir utan stoðsendinguna var með 20 skot varin. Þetta ku vera fyrsta mark Olausson í úrslitum NHL í 10 ár en þá spilaði hann með hinu sáluga Winnipeg Jets. Rob Blake skoraði fyrst mark leiksins fyrir Colorado eftir stoðsendingu frá Sakic og Forsberg en Luc Robitaille...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok