Mér fannst Kevin Spacey mikið betri sem Verbal Kint í Usual Suspects heldur en Lester,(þó hann hafi nú leikið það hlutverk mjög vel). Ég verð að nefna Malcolm McDowell í A Clockwork Orange, kröftug frammistaða. Peter O'Toole sem Arabíu Lárens,eða (fyrir þá sem skilja þetta ekki)Lawrence of Arabia. Rosalega flókinn leikur hjá sjaldséðum leikara. Og að lokum Takashi Shimura sem leiðtogi samúræjanna í minni uppáhaldsmynd, Seven Samurai, maðurinn var svo rólegur og svalur, ekkert nema viskan uppmáluð.