Ég ætla að koma af stað smá hringiðu hérna hjá okkur!

Minn uppáhalds kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur er Quinten Tarantino. Hann hefur alltaf verið með mjög athyglisverð skot á lífið, og allir hans hlutir verið gegnumsýrðir í framúrstefnu. Hann áttu stóran þátt í að búa til sérstaka kvikmyndastefnu, en ég tel núna að hann sé hreinlega bara ein heil kvikmyndastefna. Tarantínostefnan! :) Myndir sem sem hann hefur leikstýrt og átt mikinn þátt í handritskrifum eru t.d: Pulp Fiction, Reservoir Dogs, From Dusk Till Dawn, Natural Born Killers, Desperado,Jackie Brown,True Romance,Four Rooms,Destiny Turns On the Radio, Somebody to love. Einnig hefur hann leikið í fjölda annarra mynda og leikstýrt þáttunum ER.


Hver er ykkar uppáhalds??? Búum til smá gagnagrunn! :)