Það er næstum kominn mánuður síðan síðast var sent inn grein hingað á star wars! Ég er ekki einusinni alviti í þessum geira - bara aðdáandi. Nú vil ég biðja ykkur ott fólk um að nefna fyrir okkur sniðug leikföng sem þið eigið. Allir alvöru Star Wars nördar eiga fullt af fígúrum og leikföngum og drasli! Ég á notla fullt af límmiðum ( og þess má geta að R2-D2 situr framst á snjóbrettinu í hlutverki co-pilots) og síðan R2-D2 plast fígúru fulla af baðsápu og með takka sem maar ýtir á svo það komi rautt ljós. En einhverntíman keypti ég líka 3-CPO blöðru sem var einn stór gylltur haus fylltur af helíumi í þokkabót!! Eins og ég sagði þá er ég bara áhugamanneskja og á ekki mikið en þið sem eruð með skítinn - gefið ykkur fram og farið að virkja sviðið!!