Efstur á lista hjá mér er án efa hann Ennio Morricone, sem gerði tónlistina í Dollaratrilógíunni og The Untouchables. Danny Elfman er alltaf ofarlega hjá mér ásamt John Williams og James Horner. Ég verð líka að minnast á Angelo Badalamenti, en ég elska tónlistina hans í myndunum hans Lynch, sérstaklega The Straight Story. P.S. Refur98, Zimmer gerði ekki soundtrakkið í Conan the Barbarian, heldur var það Basil Poledouris og er það eitt allra flottasta soundtrakk sem ég hef heyrt.