Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

akarnid
akarnid Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
322 stig

Apple Event 9. sept. 2009 - Let's Rock'n'Roll (25 álit)

í Apple fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Jæja, nú er viðburðurinn búinn í Cupertino, Kaliforníu. Steve Jobs kom óvænt upp á svið og kynnti þetta ásamt Phil Schiller. Miðað við hvernig þessir atburðir eru þá kom sosem fátt á óvart. Tvennu hafði þó verið spáð: iPod Classic myndi verða tekinn af markaði og úr line-upinu, og að iPod Touch myndi fá sömu vélbúnaðaruppfærslu og iPhone 3G S fékk í júní (500 Mhz ARM örgjörva og 256 MB af RAM auk 3,2 mpix myndavél). Þetta gekk þó ekki eftir og var það iPod Nano sem fékk helstu uppfærsluna....

12. september, Showtime og staða Apple á fjölmiðlamarkaði. (17 álit)

í Apple fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Sælir makkanotendur Ég vill byrja á að kynna mig sem þriðja admin áhugamálsins. Ég vona að samstarf mitt með hinum adminunum og notendum áhugamálsins verði farsælt. Ég sjálfur er Mac notandi í mínum frítíma, vinn á PC í vinnunni og dytta að makkanum heima í frítímanum. En nú að því sem ég vildi ræða um - því sem verður kynnt 12. sept. Semsagt Showtime. Nú sem endranær þegar Apple ætla að tilkynna eitthvað á þessum blaðamannafundum þá fer rómur hratt milli manna hvað það muni verða. Í flestum...

faldar meiningar... (7 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 1 mánuði
tími ekki að þýða þetta… Words women use: FINE This is the word we use at the end of any argument that we feel we are right about but need to shut you up. NEVER use fine to describe how a woman looks. This will cause you to have one of those arguments. FIVE MINUTES This is half an hour. It is equivalent to the five minutes that your football game is going to last before you take out the trash, so I feel that it’s an even trade. NOTHING This means something and you should be on your toes....

Stóra Xbox álitsgerðin (15 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
My X-Box impression Jæja, nú um helgina var ég svo heppinn að fá Xbox til að hafa yfir helgina ásamt nokkrum leikjum. Og ætla að segja svona smá frá hvernig mér finnst hún, svona up close and personal. Þetta er alveg stór hlunkur, stærri en hinar vélarnar(hef þó ekki up close samanburð á Gamecube). Og vel þung líka. Svona allt í allt er hún álíka stór um sig og ágætis myndbandstæki af stærri gerð. Sú vél sem ég var með var amerísk og eftir að ég var búinn að plögga henni í samband í gegnum...

PS2 raunir á Þorláksmessu (25 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jæja ég ætla að deila með ykkur PS2 sögunni minni. Ég fór niðrí Skífuna á Laugaveginum á fimmtudaginn og keypti mér vél, minniskort í hana og Tony 3. Fór svo ánægður heim og tók gripinn í gagnið. Eftir gott kvöldspilerí fór mar svo að sofa og ætlaði að spila meira þar sem ég átti frí á föstudeginum. En nei, leikurinn neitaði að virka svo ég þurfti að pakka vélinni og leiknum saman og arka niður í Skífuna aftur. Það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri, að fara niður í Skífuna, þar sem...

Cosmic Baby - Smá yfirlit yfir sveimið (8 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jæja, fannst vera kominn tími á grein…..langa grein :) Að þessu sinni er það Þjóðverjinn Harald Bluechel sem verður fyrir valinu. Harald þessi á að baki langan feril í raftónlistinni, var ma. einn af frumkvöðlum transtónlistar ásamt ekki verri mönnum eins og t.d. Pete Namlook (FAX), Mijk van Dijk (Marmion), Jam&Spoon, Oliver Lieb ( Oliver Lieb, Paragliders og fullt af öðrum nöfnum) og Sven Vath. Svo byrjað sé á réttum enda, þá er Harald fæddur 1966 í Nurnberg. Hann fær fljótt áhuga á að læra...

Cowboy Bebop (11 álit)

í Anime og manga fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jæja, ég vil byrja á því að þakka stjórnendum huga fyrir að demba inn manga áhugamálinu :) En annars….nýlega hef ég byrjað að horfa á þætti sem njóta víst mikilla vinsælda í heimalandinu - Cowboy Bebop. Þættirnir byrjuðu úti 1998 og voru sýndir fram til 1999 og hafa síðan nýjir þættir komið úr á vídeo. Þetta fjallar um bounty huntera í náinni framtíð þar sem geimferðir eru orðnar almennar og ferðast er um allt sólkerfið og mun lengra. Svona að mestu leyti er þetta um tvo ‘félaga’, Spike og...

Presence - All Systems Gone (3 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jæja hér ætla ég að skrifa um þann disk sem hefur komið mér einn helst á óvart undanfarin ár. Gripurinn heitir All Systems Gone með Presence og er gefinn út 1999 af Pagan Recordings, snilldar house labelinu breska. Sá sem stendur bak við þetta verkefni er brekur pródúser sem heitir Charles Webster. Sá fékk nú ekki slæma skólun, vann til að byrja með með slíkum smápeðum eins og Juan Atkins, Derrick May og Kevin Saunderson. Síðar fór hann að pródúsera house með góðum árangri. Ég ætla nú samt...

Two Lone Swordsmen (15 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Fannst nú kominn tími á grein hérna….þetta er búið að vera alveg helv. dautt áhugamál :) En anyways…Two Lone Swordsmen er samvinnuverkefni milli Andrew ‘Andy’ Weatherall og Keith Tenniswood. Þessir mætu menn hófu samstarf 1994-1995, gáfu þá út smáskífuna The Third Mission árið 95 og svo ári síðar önnur smáskífa sem bar þann frumlega titil The Tenth Mission og svo seinna á árinu 96 varð fyrsta stóra afurð þeirra tvöfalda platan The Fifth Mission:A Return To The Flightpath Estate. Þessar...

The Lost - lofar helv. góðu.... (10 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Irrational Games, höfundar System Shock 3, eru með næst á teikniborðinu hjá sér The Lost fyrir PS2. Þetta lítur út fyrir að vera nokk áhugaverður leikur, en í honum ert þú móðir sem missir dóttur sína - óskírða - í bílslysi. Og á ögurstundu kemur svo sá úr neðra og býður þér tækifæri til að fara niður til heljar og bjarga henni. Gegn sálu þinni náttúrulega…business is business. Skv. umfjöllunum um þennan leik <a href="http://www.thegia.com/psx2/lost/lost.html“>hér</a> og <a...

Resident Evil: Einungis á Gamecube (20 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Í dag 13. september tilkynntu Nintendo og Capcom að Resident Evil leikjaserían myndi í framtíðinni koma einungis út á Gamecube vélinni. Þetta þýðir það að Resident Evil 4 sem var í þróun fyrir PS2, kemur nú út í staðinn á Gamecube. Resident Evil Zero sem átti upphaflega að koma út fyrir N64 en var svo breytt í Gamecube leik kemur einnig út á Gamecube áður en langt um líður. Og þetta er ekki nóg, því Capcom hafa tilkynnt um að allir leikirnir sem áður hafi komið út í seríunni muni verða...

Naughty Dog: Snillingar eða...? (11 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hvað finnst mínum fellow leikjafíklum um Naughty Dog? Þeir eru nú best þekktir fyrir Crash Bandicoot. Ég er afskaplega hrifinn af því sem þeir gera, og þá hönnuninni í leikjunum. Ég man vel eftir þegar Crash Bandicoot kom fyrst, þótti hann snilld og finnst enn. Mér finnst leikirnir sem á eftir kom, ekki vera nándar nærri eins góðir. Einnig finnst mér hönnuninni hafa hrakað eftir CB 1. Síðan sá ég fyrir ekki svo löngu síðan úr Jak & Daxter fyrir PS2, og tók ég gleði mína aftur á ný. Lúkkið úr...

Swordfish: heiladauð (SPOILER!!) (4 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ja titillinn segir allt sem segja þarf. Þetta er nýjasta myndin frá Dominic Sena(man einhver eftir Gone In 60 Seconds?) og er framleidd af spútnikpródúsernum Joel Silver. Grunnhugmyndin er sú að Hugh Jackman(Wolverine í X-Men) er súper-dúper hacker sem er nú á skilorði og er hættur í þeim geira og þráir ekkert heitar(!) en að hitta dóttur sína aftur, sem er nú í vörslu drykkfelldrar, lyfjafíkinnar kærulausar móður sinnar, sem er einnig klámmyndaleikkona!(eins gott að Barnaverndarnefnd komist...

Shrek - Mæli með henni (10 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Útspil Dreamworks teiknimyndadeildarinnar þetta sumarið er myndin Shrek, sem nýlega kom út í Bandaríkjunum og hefur verið sýnd þar við góða aðsókn og ágætis dóma hjá gagnrýnendum. Myndin segir frá Shrek, sem er góðhjartaður grænn ‘ogre’ eða risi. Hann býr í sínu húsi í fenjunum í einhverju ótilgreindum fantasíuheimi og er bara hinn ánægðasti með lífið, það eina sem hann þarf að hafa áhyggjur af eru heimskir bændur sem mæta öðru hvoru með heygaffla og eldfæri til að reka ‘skrímslið’ í burtu...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok