Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

TyrannosaurusKex
TyrannosaurusKex Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
182 stig
Áhugamál: Ljóð

Lausaganga hesta leyfð á spjallborði (1 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 13 árum, 11 mánuðum
http://www.sannleikurinn.com/koniakstofan/showthread.php?tid=320

Fréttasíða sem segir sannleikann (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 14 árum, 1 mánuði
http://www.sannleikurinn.com

Smá um stuðla (6 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Þetta er engin varnarræða stuðlasetningar heldur persónuleg skoðun mín. Illa samdar vísur eða söngtextar, sem brjóta í bága við allar bragreglur, fara í taugarnar á flestum (t.d. öllum sem eru músíkalskir), jafnvel þótt þeir viti ekki af hverju og jafnvel þótt þær séu fullar af frábærri fyndni eða djúpri speki.–Guðmundur Sæmundsson Skapandi skrif Einhverstaðar í umræðunni hér sá ég því hent fram að bragfræði, stuðlar og rím hefti tjáninguna og torveldi því að hægt sé að koma meiningu sinni...

Hugsun (0 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Við neituðum ljósmæðrum lengi vel, helvítis pakk uns lá það við allt færi´ í klessu. Almennum borgurum gefum við smjörþefinn smakk en smátt drögum líka úr þessu. Þeir sem að hlýða´ ekki hafa nú vald okkar séð og hyggjumst við auglýsa stöðu. Sá sem að eitt sinn á Suðnesjum háttsettur réð sagt var að fara, með glöðu. Öryrkjum viljum við allra síst gefa´ eitthvað smá enda vart teljast til manna. En auðmönnum svörum við alltaf hreint ,,kallinn minn, já!" ef aðeins þeir tryggð við flokk sanna. Ef...

Draumvafin (3 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Ætti ég glæsileg guðanna heilögu klæði gimsteinum vafin í ljómandi litríka þræði. Þar sem dagur og nótt væru dásamleg, unaðsleg bæði draumvafin efninu í samhljóma, samræmdu flæði. - Ég gæfi þér þau til að ganga á. En fátækur enga á svoleiðis dýrindis sauma en sæll skal ég gefa þér von mína alla og drauma. Ég vona þú þiggir þá þjakaða, sligaða og auma þeir hafa fleytt mér gegn ýmissa kreppuna nauma. En gerðu það, varlega gakktu á fótum þínum; því þú gengur á björtustu vonum. - Og draumum mínum.

Lítill sunnudagsleirburður (4 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég ákvað að setjast og semja eitt ljóð svakalegt vægast sagt frábært. Æðislegt verk sem að allir í sátt undrast hve vel ég hef stílfært. Einn himneskan gleðinnar helvítis óð sem hjarta þitt leikur sem alda. Samskonar vímu er aðeins þú átt eftir þrjá bjóra vel kalda. En auðvitað get ég ei ort eitthvað slíkt enda vart nógu velgefinn. Fífl eins og ég sem að hafa hér hátt heltaka veraldarvefinn. Ef eitthvað þá kannski er ljóðið mitt líkt leiðindavæli í manni, sem ætti að neyða til að taka þátt í...

Ein íslensk sonnetta eftir hann litla mig (7 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Þig ég vil um versta kaflan leiða og vernda þig svo ekkert slæmt þig hendi. Til þín ég aðeins allt það besta sendi. Með yður gerði almættið mér greiða. Lengi geta augun þín mér yljað og alltaf verður þú í huga mínum. Í draumum jafnt sem dásamlegum sýnum dvelur þú, allt sem ég hef hér viljað. Kossar þínir kynda í mér bál og kátína þín vekur hug úr dvala. Má ég eldast ástin mín með þér? Þína mun ég mestu drekka skál og mæra á alveg nýjum stærri skala. Allt sem munt þú þurfa, það er hér.

Skammast í bundnu 1 (20 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Þetta er eins og þegar menn kveðast á nema að hér skal ausa svívirðingum yfir þann sem orti á undan. Þar sem ég byrja þá ætla ég að velja einhvern sem ég efa ekki að muni svara vel fyrir sig, hann Steindór. Fullur strax á fyrsta bjór fáránlega mikið sljór Seint mun tappinn teljast mjór tregur bjáni er Steindór. Nú á næsti maður að níða mig hérna á opinberum vef. Níðið má vera undir hvaða hætti sem er en æskilegt er að menn allavega reyni að fylgja bragfræðinni.

Slitrur (2 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Slitruhátturinn lýsir sér einfaldlega þannig að kveðið er skv. almennum bragarreglum, en í hverri línu er a.m.k. eitt orð slitið í tvennt. -Um ég lítið stríði stund- -stapa dvel í Arnar-. Miðdags- ljúfan brýst í -blund birtu- hlýja -kjarnar. -Hlaup mitt núna hefur lífs- hik- eitt stöðvast -að eins. -Blað míns lífs er beitt sem hnífs- bana- kenni ei -meins.

Hvernig verða íslendingar til (6 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Ég var að útskýra fyrir kunningja mínum hvernig hann varð til. Eitt sinn á balli í afskekktri sveit, afdala bændur þar drukku. Sætasta stúlkan á samkomu leit sómapilt, dömu til lukku. Og þar sem að brennivín blandast við dans má búast við talsverðu gaman. Er dansleikjum lýkur kemst margur til manns þó mest virðist ráða því daman. Oftast nær þarf ekki meira en mey, mjög fulla, út ælda´ í framan. Segja við einhvern strák of fullan… hey! ,,ætluðum við ekki heim saman?" Þetta´ er víst oftast hin...

Kveðist á nr. 1 (29 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum
Jæja, eigum við ekki að prófa eitthvað nýtt núna. Ég kem með vísu og vísan á eftir verður að byrja á sama orði og ég enda. Við skulum reyna að fylgja stuðlareglunum en ef þið eruð ekki alveg viss prófið endilega samt. Ég skal þá benda ykkur á hvað er rangt á skiljanlegan máta. Þannig getið þið líka notað þetta til að læra ferskeytluformið og fengið ókeypis kennslu í bragfræði. Dæmi: Geisla/ varla/ vísur/ mínar, vel þó/ hlúi/ að þeim. Eins og/ gelgjan/ ung víst/ brýnar: Alveg/ glatað/ lame!...

Af gefnu tilefni (1 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum
Ég rak augun í lítið afstyrmi sem einhver sniðug sál hafði sett inná einn korkinn undir því yfirskini að það væri ljóð. Því var ég ekki sammála enda var viðkomandi verk ekki aðeins arfaslakt og snautt allri listrænni hugsun heldur einnig ósmekklegur incest fíflagangur. Ég hef jafn gaman af klámvísum og blautum kveðskap eins og hver annar en ég nenni ekki að hafa hér uppi fyrir allra augum ílla samsettar kynlífslýsingar óþroskaðra einstaklinga um hvað þeir vilji gera við móður sína og því...

Eitt lítið (4 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum
Ekkert nema orð svo máttlaus smá á ég handa þér og finnst það miður. Hugur minn er allt það sem ég á ef þú vilt þá skal ég helga hann yður. Þó ekki mun hann auðinn færa þér má annað meira og betra í hann nota. Sæki þér að heimsins ólánsher hjá mér áttu ósökkvandi flota. Ef að lífið leika mun þig grátt læt ég ekki staðarnumið, nægja. Að fá þig til að brosa smátt og smátt, smæla eða verða bara sátt. Ég mun koma þér til þess að hlæja.

Kynning á hætti - Afhending (4 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Afhendi ég ykkur núna eitthvað kvæði. Lengi dvel á ljóða svæði. Afhending hefur tvær ljóðlínur og enda báðar á tvíliðum (tveggja sérhljóða orði) sem ríma saman. Fyrri ljóðlínan samanstendur af sex bragliðum en sú seinni af fjórum. (Einn bragliður í afhendingu eru tvö atkvæði (sérhljóðar)). Bragarliðir býsna skipt´ í bundnu máli Óbeit hef á öllu káli. Stuðlar í fyrstu línu eru þrír og verður stuðull að vera í þriðja braglið og síðasti stuðull verður að vera í fimmta braglið. Seinni línan er...

Á nýju ári - Braghenda (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Árið liðið enn er skriðið aðrar brautir. Kanna fleiri kvennalautir, kannski rætast draumar blautir.

Lítil braghenda (1 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Utangátta oft ég virðist enda drengur heimskur, þarf að hugsa lengur. Helvíti oft ílla gengur.

Fyrripartur nr. 9 (16 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Nú væri gaman að fá einhvern botn í þetta frá sniðugu fólki. Veturinn er vinur minn veð ég kátur skafla.

Ort fyrir unga fólkið. (3 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Ekkert líkt sem áður var, enga brúka´ ég tregt. Snilldin vá shit, mægod marr, mjög svo rosa gegt. Hey þúst kannski hérna gaur, hæfæv! æ þú veist. Fokkings djísus ekki´ á aur, engum get ég treyst. Kræst já núna kjeppinn er, kúl í engum bol. Alltaf geng að ofan ber, ógó flottur;) LOL!

Listin að yrkja (32 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Þó flest séu dáin & foldu nú náin, færustu skáldin & ljóðsmiðir. Þó léleg sé spáin þá lifir enn þráin, og lærast enn fræðin & orðsiðir. En lítið ég gef í þá lúða sem yrkja, litlaust & óstuðlað helvítis drasl. Óbundinn kveðskap tekst aðeins að virkja, örfáum snillingum -langt eftir- basl. Lærið þið reglurnar, ljóð munu skána, lofa ég ykkur því Suttunga drykkur. Aldrei skal falla til fávita´ & bjána, frekari ráð ei í bráð mun uppgefa´ ykkur.

Uppsögn (1 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Rekið hef sjálfan mig ræfilinn úr, rústum sem eitt sinn var samfélag. Heiðvirðra manna sem heimta nú skúr, helvítis kjaftæðis upp á dag!

Pólitík (1 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Stjórnmál og pólitík stórlega leiðast mér, stefnulaus er í þeim málum gervöllum. Flestir spá aðeins í framan hjá sjálfum sér, fávitar sinna best peninga köllum. Skriffinska öll þýðir helvítis hausverkur, og hamingja fólks getur verið að veði. Þó aldrei ég mun teljast maður neitt stórmerkur, mun ég samt fegin því á dánarbeði.

Tvö kvæði (5 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Til vinkonu Fyrirgefðu ef ég reynist í orði, ódæll og færi þér særindi að borði. Þú ert umkringd vinum sem vita best, valhoppandi á of háum hest. Enginn þér neitar né mælir í mót, en…. Mark tekur enginn á dekraðri snót. Áskorun Væri nú gaman af vísu´ eða kvæði, vandlega skrifuðu á þessu svæði. Gaman ef sniðug og glettin hún væri, geðveik hún yrði ef væri hún bæði. Frábært það yrði ef betur til tækist en til stæði!

Þríliðað jólakvæði (2 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Gleðileg jólin og guð gefi þér, gæfu og allt það sem dreymir þig. Þó glitrandi fáir ei gjafir frá mér, gerðu það erfðu það ei við mig. Ef vissi ég hvað þú nú vildir að gjöf, vandamál yrði það harla neitt. Ég færandi kæmi með heiminn og höf, handa þér innpakkað jólaskreytt. Vildir þú hágæða heimabíó, helvíti splunkufínt steríó. Viljir þú eitthvað svo lítið og létt, látlaust en bragðgott svo dásamlegt nett. Ég get svo sem pakkað inn prins póló! Viljir þú aðeins fá ást jafnvel knús, æðislegt...

Varðandi D&D og Paladin (28 álit)

í Spunaspil fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Fyrst langaði mig að vita hvort einhver vissi hvort maður fær ekki bónus í saving throws ef maður er í magical armor +1 eða meira í D&D. Mér finnst það hljóti að vera, annars hef ég ekki fundið það neinstaðar í reglunum:( Svo er annað, mér finnst mikið bera á því (sérstaklega í minni spilagrúbbu) að það sé verið að leggja Paladins í einelti bara af því þeir eru Lawful good og mega ekki gera neitt slæmt. Það hefur komið fyrir að hinir PCarnir eru að koma með leiðinda comments og óþarfa...

Stuðningsyfirlýsing við Warcraft (0 álit)

í Blizzard leikir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Warcraft 2 var svo mikil snilld. Ég held ég hafi bara aldrei spilað tölvuleik eins mikið. Þegar ég er búinn að kaupa hann þá mun ég ekki standa upp frá tölvunni jafnvel þó það myndi kvikna í húsinu mínu. Ég sit í logunum og spila Warcraft þangað til ég bráðna!!!!! Viva Warcraft….
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok