Fyrst langaði mig að vita hvort einhver vissi hvort maður fær ekki bónus í saving throws ef maður er í magical armor +1 eða meira í D&D. Mér finnst það hljóti að vera, annars hef ég ekki fundið það neinstaðar í reglunum:(

Svo er annað, mér finnst mikið bera á því (sérstaklega í minni spilagrúbbu) að það sé verið að leggja Paladins í einelti bara af því þeir eru Lawful good og mega ekki gera neitt slæmt. Það hefur komið fyrir að hinir PCarnir eru að koma með leiðinda comments og óþarfa skítkast á Paladin sem ég er að spila. Ætti ég að láta það viðgangast. Ef t.d Chaotic Neutral Half-orc sem er í partyinu er að fleygja dauðum úlfum inní tjöld til fólks (sem hefur skeð), ekki get ég sem Paladin leyft honum það, er það nokkuð?