Ég ákvað að setjast og semja eitt ljóð
svakalegt vægast sagt frábært.
Æðislegt verk sem að allir í sátt
undrast hve vel ég hef stílfært.
Einn himneskan gleðinnar helvítis óð
sem hjarta þitt leikur sem alda.
Samskonar vímu er aðeins þú átt
eftir þrjá bjóra vel kalda.

En auðvitað get ég ei ort eitthvað slíkt
enda vart nógu velgefinn.
Fífl eins og ég sem að hafa hér hátt
heltaka veraldarvefinn.
Ef eitthvað þá kannski er ljóðið mitt líkt
leiðindavæli í manni,
sem ætti að neyða til að taka þátt
í eilífðarinternetsbanni.