Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Eltoro
Eltoro Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
668 stig

Áhugahnefaleikafólk ATH!!!!!!!!!!!!!!! (10 álit)

í Box fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hóf til að fagna því að Áhugamannahnefaleikar voru lögleiddir í vikunni verður haldið á Players í Kópavogi laugardagskvöldið 16 febrúar kl: 20:00. Léttar veitingar verða í boði ásamt ýmsum uppákomum. Eru allir áhugasamir velkomnir. Mætum öll og fögnum saman þessum merku tíðindum í Íslenskri íþróttasögu. Kveðja El Toro

Boxið á Þingi.. (17 álit)

í Box fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Í gær fór fram önnur umræða um áhugamanna hnefaleika á alþingi. Voru ýmsar breytiingartillögur samþykktar sem snérust fyrst og fremst um að kalla þetta Áhugamanna hnefaleika í staðinn fyrir Ólympíska hnefaleika. Var málinu svo vísað til þriðju og loka umræðu sem mun enda með atkvæðagreiðslu og þá sjáum við víst hvort að Íþróttin sem við Elskum verði Lögleidd. Hvet ég sem flesta að mæta á Þingpalla og fylgjast með frammvindu mála og styðja við bakið á okkar mönnum. Mér sýnist á öllu að þriðja...

Óvænt úrslit??????? (9 álit)

í Box fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Bernard Hopkins er nafn sem flestir boxáhugamenn áttu ekki von á að vera á allra vörum í dag 1 október.En manninum tókst það sem margir (þar á meðal ég) áttu ekki von á, að sigra Trinidad. Bardaginn byrjaði nú samt í búningsklefanum þegar menn frá Hopkins vildu að Tito léti vefja hægri hendina aftur þar sem óþarflega mikið teip var notað. Trinidad sagði að ef hann ætti að vefja sig aftur þá mundii hann ekki berjast en fékk þau sklaboð frá eftirlitsmanni að þá mundi hann ekki berjst.Hann...

Max Schmeling orðinn 96 ára!!! (2 álit)

í Box fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fyrrum Þungaviktarmeistarinn Max Schmeling fagnar í dag 96 ára afmæli sínu.Karlinn tjáði fjölmiðlum að það verði ekkert sérstakt gert í dag.Hann er í góðu formi og æfir tvisvar á dag.Schmeling er ennþann dag í dag að fá hundruð bréfa frá aðdáendum um allan heim.“Ég get ekki útskírt þetta.Ég er bara stoltur af því að hafa verið á sama stalli og aðrir stórkoslegir íþróttamenn.”Þegar hann var spurður hvers hann óskaði í nánustu framtíð þá sagði Schmeling að góð heilsa og margir góðir vinir væru...

Sinitsin Evrópumeistari!!! (0 álit)

í Box fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Rússneski súperfjðurviktarboxarinn Boris Sinitsin (38-6-1)vann á laugardagskvöldið Evróputitilinn í Súperfjaðurvikt sem sem var á lausu.Sinitsin siraði Spánverjann Pedro Miranda (25-2) á stigum í keppni sem haldin var á Spáni.Þetta var nú ekki neitt sérstaklega skemmtilegur bardagi, ég horfði á hann á Eurosport og þetta voru engir A klassa boxarar.Hápunktarinr voru þegar Sinitsin sló Miranda niður í Tíundu og tólftu lotu en Miranda sóð upp í bæði skiptin.Enski þulurinn hafði miklar áhyggjur...

Trinidad-Hopkins Frestað!!!!!!!! (1 álit)

í Box fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fyrirhuguðum bardaga milli Felix Trinidad og Bernard Hopkins hefur verið frestað vegna atburðanna í Bandaríkjunum í gær.Ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin en það kemur örugglega fljótlega í Ljós.Þangað til verðum við bara að senda góða strauma út til þeirra sem um sárt eiga að binda og vona þeir sem bera ábyrgð á þessu verði dregnir fyrir dóm. Kveðja El Toro

Barrera sigrar Sanchez (0 álit)

í Box fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fjaðurviktarmeistarinn Marco Antonio Barrera gladdi augað í Reno um helgina þegar hann Sigraði Fyrrum WBA léttfjaðurviktarkóng Enrique Sanches.Sanchez (28-1-2)sem er örvhentur var sleginn niður með hægri í þriðju lotu og vinstri krók í fjórðu lotu en hélt samt áfram í fimmtu og sjöttu en var svo stoppaður í Sjöundu lotu þegar hornið hans ákvað að þetta væri orðið nóg.Það var alveg ljóst að Basrrera var ætlað að vinna og með þessum sigri hefndi hann ósigurs gegn Sanchez þegar þeir voru...

Tito Trinidad VS The Executioner Hopkins (4 álit)

í Box fyrir 22 árum, 8 mánuðum
15 September!!!!!! Þetta er dagsetning sem allir áhugamenn um hnefaleika eiga að taka frá fyrir sig. Það er mikil eftirvænting í hnefaleika heiminum út af lokabadaga Milliviktarmóts Don King.Þegar þessi bardagi verður er þetta stærsti viðburður í millivikt síðan Sugar Rey Leonard sigraði Marvelous Marvin Hagler 1987 í gríðarlega góðum bardaga.Það eru flestir sem halda að Trinidad eigi eftir að sigra Hopkins þar sem Hopkins er orðinn 36 ára gamall og hafi ekki barist við neina marktæka...

Oskar De La Hoya-Javier Castillejo (5 álit)

í Box fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Á morgun leiða saman hesta sína Oskar De La Hoya og Javier Castillejo í bardaga sem gæti komið De La Hoya á spjöld söguna með Thomas Hearns og Sugar Ray Leonard sem aðeins þriðji boxarinn til að ná titli í fimm mismunandi þyngdarflokkum.Oskar kallar bardagann “THE QUEST” enda er þetta sögulegt sem hann er að reyna að gera, hinsvegar kallar Javier þetta “THE REQUEST” þar sem að Oskar bað um bardagann.Castillejo sem er búinn að vera í Las Vegas síðustu tvo mánuði og lýsti því yfir að hann væri...

Rahman sagt að berjast við Lewis!!!!! (3 álit)

í Box fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Dómarin í máli Lewis vs Rahman er búinn að útskurða að Rahman verði að heiðra samninginn sem hann skrifaði undir fyrir bardagann í apríl.Hann verði að berjast við Lewis næst eða vera óvirkur í 18 mánuði.Auðvitað mun hann berjast við lewis því að ef hann er óvirkur í 18 mánuði þá verða allir titlarnir teknir af honum.Það er ekki búið að útskurða hvort samningur Don King við Rahman sé löglegur eður ey en það hlýtur að koma í ljós fljótlega.Nú er bara spurningin hvort við fáum dagsetningu á bardagann?

Lewis-Rahman 2 að verða staðreynd!!! (6 álit)

í Box fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Það virðist vera ákveðið að Rahman muni berjast við Lennox Lewis þann 18.Maí næstkomandi.Rahman er talinn fá að andvirði 14 milljónir Dollara fyrir bardagann og ef hann sigrar þá fái hann 6 bardaga samning hjá HBO sem tryggi honum 5,5 til 7 miljónir dollara í verðlaunafé fyrir hvern bardaga.Hins vegar ef hann tapar fyrir Lewis þá fær hann tvo bardaga sem gefa honum í 3 milljónir dollara og er þá heildarsumann orðin 17 miljónir dollara.Talið er fullvíst að bardaginn fari framm í Las...

Vargas sleginn niður en sigrar samt!!!!!!! (2 álit)

í Box fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Fyrrum IBF léttmillivigtarmeistarinn Fernando Vargas var sleginn niður í annari lotu með fallegri beinni hægri,en náði að komast í gegn um lotuna.Í fimmtu lotu náði Vargas yfiburða stöðu með því að skera Rivera yfir vinstra auganu og var að taka hressilega á honum en bjallan bjargaði Rivera.Í sjöttu lotu sló Vargas Rivera niður með svakalegu skrokkhöggi.Rivera tókst að standa af sér höggið og talningunna en hornið hans henti inn handklæðinu.Tíminn var 0:39 sek eftir af sjöttu lotu.Það verður...

De la Hoya-Castillejo !! (4 álit)

í Box fyrir 23 árum
Nú er það orðið ákveðið að Oskar De La Hoyja ætlar að berjast við Javier Castillejo sem er WBC heimsmeistari í Léttmillivigt.Bardaginn fer fram 23 júní í MGM Grand í Las Vegas og mun TVKO sjónvarpa beint frá þessum viðburði.Oskar er með þessu að reyna að fanga titil í fimmta þyngdarflokknum sem hann keppir í.Aðeins Sugar Ray Leonard og Thomas Hearns hafa gert þetta áður þannig að þetta er nokkuð sjaldgjæft.Þetta gæti orðið mjög spennandi og hlakkar mér til að sjá að þetta ætlar að verða...

Tyson Vill Rahman!!! (9 álit)

í Box fyrir 23 árum
Mike Tyson hefur óskað Hasim Rahman til hamingju og segist vera meira en tilbúinn að berjast við hann.Tyson talar um að hann vilji endilega fá tækifæri til að verða aftur óumdeilanlegur Þungavigtarmeistari fimmtán árum eftir að hann vann titilinn fyrst.Það er talað um að ráðgjafi Tyson Shelly Finkel hafi verið kominn í símasamband við umboðsmann Rahman nokkrum mínútum eftir að Rahman rotaði Lewis.Núna er spurningin sú hvort að Tyson fái tækifæri áður en Rahman berst við Lewis en það hlýtur...

Lewis tapar!!!!! (5 álit)

í Box fyrir 23 árum
Það gerðust tíðindi í gær þegar að nýr Heimsmeistari í þungavikt steig á svið í Suður Afríku.Það sem menn voru að spá alla vikunna rættist.Lennox Lewis vann ekki heimavinnuna sína og mætti til leiks í sennilega versta formi sem ég hef séð hann í.Fyrsta lota byrjaði rólega en Lennox var farinn að slá mörg þung högg og var fljótlega búinn að skera Rahman og bólgnaði vinstra augað á honum.Hins vegar svaraði Rahman alltaf fyrir sig með ágætis höggum.Lewis virtist vera að gera allt nokkuð rétt og...

Wladimir Klitschko-Derrick Jefferson. (4 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það var ekki langur bardaginn í Þýskalandi á milli þeirra félaga Klitschko og Jefferson.Það var ekki langt liðið á fyrstu lotu þegar að Klitschko slá vinstri krók sem sendi Jefferson í gólfið.Jefferson náði að lifa fyrstu lotuna af en var stoppaður í annari lotu þegar 2:09 minutur voru eftir af lotunni.Það var hægri hendin hjá Klitscho sem að stoppaði Jefferson. Eftir bardagann sagði Wladimir að hann vildi berjast við Lennox Lewis,John Ruiz,Evander Holyfeld eða Mike Tyson því að þetta væru...

Julio César Chavez berst einu sinni enn. (3 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Julio César Chavez Hefur lyst því yfir að hann ætli að beiðni föður síns að berjast einn kveðju bardaga.Enginn andstæðingur hefur verið nefndur til sögunnar og ekki er nefnd nein dagsetning á hvenær þetta gæti orðið.Chavez sem barðist síðast við Kostya Tzsyu í Júlí hefur þrisvar sinnum orðið WBC meistari og er talinn vera goðsögn enda er ekkert annað hægta að segja um manninn en það að hann var náttúrulega stókoslegur meistari og vonandi fær hann einhvern góðann til að keppa við í hinsta...

Ruiz fær konunglegar Móttökur!! (3 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
John Ruiz fékk konunglegar móttökur þegar hann kom heim til Puerto Rico.Þar biðu eftir honum Felix Trinidad, WBO Veltivigtar meistarinn Daniel Santos og fyrrum meistarar John John Molina, Alex Sanchez, Samuel Serrano, Alfredo Escalera og Rafael Del Valle.Öllum ætti að vera kunnugt að Ruiz er fyrsti latíno meistarinn í Þungavigtinni og eru Puerto Ricanar mjög stoltir af sínum manni enda sigraði hann Holyfeld glæsilega í ágætum bardaga. Skrúðgangan sem hann fór í stóð í 9 klukkutíma en ferðin...

David Tua-Danell Nicholsen!! (1 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Annað kvöld verður á showtime tveir skemmtilegir Þungavigtar bardagar.Annarsvegar er það David Tua 37-2 með 32 rothögg, sem á að berjast við Danell Nicholson , 39-3 með 30 rothögg, og hins vegar er það Clifford Etienne 19-0,gegn Fres Oquendo líka 19-0. Í Vigtuninni í gær var Tua 247 pund, Nicholson var 223 pund,Etienne var 225 og Oquendo var 221 pund.Ég held að þetta gætu orðið mjög skemmtilegir bardagar þó að ólíklegt sé að við fáum á sjá þá nema sem upptöku seinna á sýn.Ég held að...

David Reid fyrsta Apríl!!!! (2 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Fyrrum WBA jr millivigtarmeistarinn David Reid snýr aftur í hringinn 1 Apríl næstkomandi og berst við þrefaldann titiláskorandann Urbano Gurrola á Hard Rock Hotel í las vegas.Reid tapaði eins og margir muna eftir fyrir Tito Trinidad á síðasta ári í frekar skemtilegum bardaga.Þetta verður eflaust auðvelt fyrir Reid enda er lýklegt að þetta sé auðveldur andstaðingur til að ná upp sjálfstrausti eftir frekar magurt síðasta ár. Kveðja El Toro

Frans Botha berst á Föstudaginn!! (4 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Fyrrum IBF meistarinn Frans Botha 41-3-1 (26 rothögg) stígur í hringinn á föstudagskvöldið.Andstæðingurinn er Joey Guy 27-5 (15 rothögg)frá Memphis.Botha er af mörgum talinn vera lang versti meistari sem hefur verið með belti enda var hann ekki lengi með það en hann segist aldrei hafa verið í betra formi og telur sig vera reiðubúinn að berjast aftur um titil.Hann ætti þá að skora á Ruiz eða klitschko því að eins og Lewis fór með hann síðast þá er Botha ekkert á leiðinni að fá annað tækifæri...

Mosley sýnir takta. (1 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það má með sanni segja að “Sugar” Shane hafi verið með góða sýningu fyrir hnefaleikaaðdáendur út um allan heim.Það kom kannski ekki mikið á óvart að andstæðingurinn var ekki nein rosaleg fyrirstaða en bardaginn var alveg ágætis skemmtun og flottir taktar sem voru sýndir(reyndar bara af öðrum aðilanum en það var svo sem ekki við öðru að búast).Það hefði nú samt verið meira fjör ef að Mosley hefði lent í einhverjum vandræðum með Shannan Taylor en svona er þetta bara.Það var mjög falleg hægri...

Maskaev lá í því !!! (2 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Oleg Maskaev fékk rækilega ráðningu í gærkvöldi.Maskaev sem barðist við Lance “Mount” Whitaker var steinrotaður í annarri lotu. Fyrsta lotan var nokkuð róleg og þeir báðir að “lesa”hvorn annan en í annari lotu að færast fjör í leikinn en þegar Maskaev byrjaði með fléttu kom Whitaker með beina hægri sem tók lappirnar frá Maskaev og fylgdi vel á eftir með hægri stungu sem að felldi hann og tókst honum ekki að standa upp og var talinn út. Bardaginn sem átti að vera endurkoma hans eftir tapið á...

Lewis-Rahman verður í Suður-Afríku! (4 álit)

í Box fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það virðist vera ákveðið að titilvörnin hjá Lewis í Apríl verði í Suður afríku.Samkvæmt því sem umboðsmaður Lewis segir þá verður bardaginn haldinn í Carnival City sem rétt fyrir utan Jóhannesarborg.Þetta ætti að vera staðfest á blaðamannafundi seinna í dag.Umboðsmaður Lewis skoðaði aðstæður og segir þær fyrsta flokks.Eini gallin sem sjáanlegur er er það að staðurinn er í 1000 feta hæð yfir sjávarmáli þannig að þeir þurfa að fara til Suður-Afríku fjórum vikum fyrir bardagan til að venjast...

Eric Morales tekur WBC Fjaðurvigtartitilinn!!!! (3 álit)

í Box fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Eric Morales vann Guty Espadas á stigum í gærkvöldi og tók WBC titilinn af Espadas.Dómararnir skoruðu viðureignina 116-112, 116-112 og 115-113 Morales í hag.Morales tók frumkvæðið snemma í bardaganum en hans bestu lotur voru 7 til 10.Eftir það var Espadas betri en þetta var bara of seint hjá honum.Espadas náði góðu höggi á Morales í 12 lotu en hafði ekki orku í að klára það þrátt fyrir að Morales væri meiddur.Það er nokkuð ljóst að Morales mun berjast næst við sigurveigarann úr...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok