Mike Tyson hefur óskað Hasim Rahman til hamingju og segist vera meira en tilbúinn að berjast við hann.Tyson talar um að hann vilji endilega fá tækifæri til að verða aftur óumdeilanlegur Þungavigtarmeistari fimmtán árum eftir að hann vann titilinn fyrst.Það er talað um að ráðgjafi Tyson Shelly Finkel hafi verið kominn í símasamband við umboðsmann Rahman nokkrum mínútum eftir að Rahman rotaði Lewis.Núna er spurningin sú hvort að Tyson fái tækifæri áður en Rahman berst við Lewis en það hlýtur allt að velta á hvernig samningurinn þeirra á milli var.

Kveðja El Toro