Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Móri hefur ekki komið heim! (9 álit)

í Kettir fyrir 11 árum, 12 mánuðum
Veit ekki hve actív þessi síða er en þar sem ég er búin að auglýsa á kattholti, dýrahjálp og á bland.is þá sakar ekki að auglýsa hér líka. Allt getur hjálpað að fá kisustrákinn minn heim. Þetta er hann Móri, hann er annar af kisubræðrum sem ég á og hans er sárt saknað.  Þetta er kisinn sem gefur mér laufblöð sem hann "veiðir" úti, kúrir á bringunni minni þegar við horfum á sjónvarpið, er óóóður í kisunammi en matvandur með flest annað sem er ekki kattamatur og fer svo með okkur karlinum í...

Kolaportið - Endilega kíkjið við (0 álit)

í Myndlist fyrir 13 árum, 7 mánuðum
Góðan og blessaðann daginn! Næstu tvær helgar verður hún móðir mín að selja í kolaportinu og var hún svo yndisleg að taka að sér að selja eitthvað af myndunum mínum, jólakort og annað smávægilegt í leiðinni. Þannig að næstu tvær helgar (18.-19. & 25-26.september) verður hægt að kaupa fallegar innrammaðar myndir, jólakort eða aðra gersemar. Endilega droppið við og hver veit nema þið finnið einhvern fjársjóð til að taka með ykkur heim! Þegar við fáum að vita hvar við verðum þá ætla ég að...

Prentara hjálp - Blek (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Er ekki viss hvort ég er að senda þetta á réttan stað en verður bara að hafa það. Málið er að ég á Canon prentarann Pixma IP4500 og mig vantar að fylla á blekið í honum. Að kaupa blek í prentara í dag er ekkert grín svo ég reyni yfirleitt alltaf að gera góða verðsamanburð áður en ég held af stað. Hingað til hef ég verið að kaupa þetta hefðbundna fyrir akkúrat þennan prentara en svo rakst ég á prentvorur.is og þá á þetta http://prentvorur.notando.net/product/details/product_id/352 leitaði upp...

Fressinum Bjössa vantar heimili ....sem fyrst! (0 álit)

í Kettir fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Vegna breyttra heimilisaðstæðna þá vantar Bjössa að fá nýtt heimili! Bjössi er bröndóttur ógeldur fress sem fæddist út í sveit upp á hlöðulofti fyrir ca 1-2árum síðan. Læðan á bænum hafði læðst þar upp stigan og gotið honum þar. Svo hafði hún haldið áfram að fara þarna upp að gefa honum að borða svo enginn viss af honum. Það var ekki fyrr enn einn daginn þegar lítill pattaralegur kettlingur rúllaði niður stigann sem fólk uppgötvaði að hann hafði verið þarna upp allan tímann. Þess vegna fékk...

Leit að ákveðnu GÖMLUM leikjum... (2 álit)

í Tölvuleikir fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Hæ hæ! Ég er að leita að gömlum leikjum sem ég spilaði hérna áður fyrr, líklega kringum 95. Mig rámar í hvernig leikirnir voru en alls ekki nöfnin! Þetta voru tveir leikir sem ég fékk lánað frá einum vini mínum en þá voru allir leikir í massívum kössum. Þeir voru gefnir út þegar fyrstu 3d leikirnir voru að detta í hús svo þótt þetta séu ruslgæði miðað við daginn í dag rosalegt þá! sérstaklega fyrir mig þar sem ég var þá fyrst að detta almennilega inn í leiki eftir að hafa spilað Monkey...

Mömmukökur? (6 álit)

í Matargerð fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Smakkaði þær þegar ég var lítil og fann þetta svo í kökukassa frá frón og keypt lítin kassa dýrum dómum. En í ár þá langar mer að bara svona sjálf! þetta eru litlar brúnar samlokukökur með hvítu kremi og svoooooo góðar! Ef einhver lumar á uppskriftinni þá væri ég rosalega þakklátt þar sem þetta eru einu smákökurnar sem ég get hugsað mér að baka fyrir þessi jól :)

Aion info? (18 álit)

í MMORPG fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Er ekkert búin að vera allt of mikið að fylgjast með undanfarið en heyrði nafnið um daginn og hef verið voðalega forvitin að vita meira… veit einhver um þennan leik, hvenær hann kemur eða hefur prufað beta? Grafíkin virðist vera algjört augnkonfekt en ég er meira forvitin að vita hvort spilunin og innihaldið sé þess virði að eltast við leikinn… allar upplýsingar vel þegnar! ^^

De-activate account? (2 álit)

í MMORPG fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Hvert í fjandanum fer maður til að hætta að borga fyrir war? Fer í manage account en þar kemur bara til greina hvernig þú ætlar að borga en ekkert um hætta…. kv. Ein lost

Brauðskál fyrir súpu (2 álit)

í Matargerð fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Hef heyrt um þetta og séð oft en alltaf langað að prufa sjálf. Brauð sem er hálfgerðkúla, mjúka innihaldið tæmt innan úr brauðinu og notað sem skál fyrir súpu. Nema ég hef aldrei náð að næla mér í uppskriftina af þessari snilld og núna er matarboð framundan og ef einhver lumar á uppskriftinni þá væri það vel þegið…veit ekki nákvæmlega undir hverju ég á að leita að þessu á google :P Með fyrirfram þökkum ^^

Alvöru Núðlur (3 álit)

í Matargerð fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég elska núðlurnar niðri á asíska staðnum á Grensás sem heitir Tían nema hvað mig langar að geta gert þetta sjálf þar sem það er margfalt ódýrara nema ég veit ekki alveg hvernig ég næ þessu svakalega góoða bragði sem þau eru með. Lumar einhver á leyndarmálinu við að gera yndislegar asískar núðlur með kjúkling eins og maður fær á stöðunum? ER viss um að þetta sé einhver olía eða eitthvað trick við matargerðina…..bara…er ekki viss! :S

Kisustrákur fannst á Háaleitisbrautinni (0 álit)

í Kettir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Frekar ungur kisustrákur ráfaði inn í kjallaraíbúð á Háaleitisbrautinni og vantar að komast heim. Hann er ólarlaus, ómerktur og virðist óvanur útiveru. Hann er bröndóttur og gæfur. Mig grunar að hann sé einhverstaðar úr 108 svæðinu en betra að auglýsa á sem flestum stöðum bara til að vera örugg að eigandinn finnist. Frekari upplýsingar: Bjarnar gsm: 690 8808 Berglind gsm: 696 6740 myndir: http://internet.is/bjabja/Berglind/KISA/IMG01_34.JPG...

Kupon.is (0 álit)

í Myndlist fyrir 15 árum, 1 mánuði
Eru einhverir að taka þátt í http://kupon.is keppninni? það vill svo til að ég er að taka þátt og er með þessa “íslenskir víkingar” á bls. 5. Endilega takið þátt og kjósið ykkar uppáhalds hugmynd! :D

Ódýrast? (2 álit)

í Blizzard leikir fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Góðan daginn Er að pæla að fara “fjárfesta” í WOTLK expansioninu…en þá er pælingin…hvar er það ódýrast eða er þetta allt á nákvæmlega sama verðinu allstaðar? Ætlaði að upgrade'a online en þá kom alltaf upp “page unavailable” error síða…. Er ekki hægt að upgrade'a online eða er þetta bara temporary? Takk fyrirfram

Ódýr kvöldmatur (4 álit)

í Matargerð fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Sælt veri fólkið Eftir að allt fór að hækka, laun lækkuð og lán farin til fjandans þá ákvað ég að spyrjast fyrir um hugmynd af ódýrum, en samt girnilegum kvöldmat. Þá að hráefnin séu ekki of dýr, og þetta sé fyrir 2. Ef einhverjir leyna á skemmtilegum uppskriftum endilega deilið þeim með okkur. Ég er orðin leið á að borða frosið skyndifæði bara því það er ódýrara en að kaupa í heila máltíð og éta hana…..mig langar að ELDA! ..og já ég er mjög óhugmyndarík þegar kemur að matseld…. takk...

2 kettlingar (1 álit)

í Kettir fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Var ekki viss hvort ég ætti að skrifa þetta en það veitir ekki af smá auka ráðum frá reyndu kisueigendum! Á eftir erum við kærastinn að fá okkur tvo svarta kisustráka. Fyrstu gæludýrin okkar saman og erum við rosalega spennt fyrir þeim. Við erum búin að kaupa allt sem þarf og fyrir utan það þá á fjölskyldan mín tvo ketti núþegar og shaffer blandaða tík. Við búum í kjallaranum fyrir neðan þau og alltaf hefur gluggi verið opin fyrir kettina þeirra til að koma í heimsókn ef enginn er heima uppi...

macro? (5 álit)

í Ljósmyndun fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Hef verið að skoða DeviantArt í nokkurn tíma og séð þessar sjúklegu flottu ljósmyndir teknar með macro linsu. Nema hvvað ég er frekar nýbyrjuð í að fikra mig áfram í ljósmyndum og er ekki alveg að fatta nákvæmlega hvernig linsa það er. Jújú, hún getur zoomað alveg rosalega vel inn í hlutina, en hvað heita þær? Td. þá á ég Canon eos 400d og ef mig langaði í macro linsu fyrir þá myndavél hvað myndi hún heita? Er enn að reyna átta mig á hvernig linsu ég ætti að kaupa mér næst (er bara með þessa...

Nissan Micra ´97 (8 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Sælt verið fólkið Langaði að athuga hvort einhverjir sniðugir bílamenn gætu aðstoðað mig við smá vandamál sem er að blossa upp hjá mér. Ég á gyllta nissan Micru, beinskiptur, árgerð 97, keyrð 155.þús og hef átt hana í 5 ár núna. Held að hún hafi bara átt einn eiganda á undan mér…en allaveganna… Undanfarna 1-2mánuði hefur bílinn átt voðalega erfitt með að gefa í, fara upp brekkur og reynir rosalega á sig þegar maður skiptir um gír. Ég veit að aldurinn er kannski farin að segja til sín en mér...

LHÍ -Grafísk hönnun? (2 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 15 árum, 12 mánuðum
Sælir Hugarar Mig vantar að fá ráðleggingar og reynslusögur frá fólki sem hefur farið í listaháskóla Íslands í grafíska hönnun eða þekkir einhvern sem er/var. Mig langar óskaplega að mennta mig sem grafískur hönnuður þar sem oftast en ekki þá gildir menntunin á pappír mikið meira en reynsla (nema maður hafi KILLER möppu þeas.) Og þar sem ég hef engann veginn efni á að fara í búferla flutninga, eða á efni á námi erlendis þá datt mér í hug að forvitnast meira um háskólanám í grafískri hönnun...

Leit að hönnuð,,, hvert skal leita? (4 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 16 árum
Svo er mál mðe vexti að vinkona mín er að endurhanna barinn sinn og hefur ákveðnar hugmyndir hvernig útlitið á að vera. Nema hvað að henni vantar hönnuð til að hanna það sem þarf en hún veit ekki alveg hvert hún getur leitað. Persónulega hef ég ekki tíma fyrir þetta svo ég ákvað að gefa henni upp heimasíður og nöfn hjá fólki sem hún gæti nálgast og athugað hvort áhugi væri fyrir verkefninu. Fyrir utan að fara beint á auglýsingastofu….hvar er hægt að finna fólk til að gangast að þessu...

Borgin að taka merkta ketti ?!??! (7 álit)

í Kettir fyrir 16 árum, 1 mánuði
Svo er mál með vexti að amma mín býr í árbænum og á tvo ketti. Þeir eru báðir eyrnamerktir og með ól með skýrilegu merki á. Nema hvað að í fyrrinótt þá er annar kötturinn eitthvað á vappi í næsta botnlanga um nóttina þegar ríkið tekur köttinn og amma mín þarf að fara næsta dag og borga 5000kr til að fá köttinn tilbaka. Ég skil svosem þessa herferð þeirra gegn ómerktum köttum….en að taka vel merktan kött rétt hjá heimili sínu og svo heimta rukkun?!?! Er VEL reið yfir þessu atviki og því spyr...

hæg brennsla eða hvað?! (21 álit)

í Heilsa fyrir 16 árum, 3 mánuðum
ÉG er að reyna losna við aukakílóinn en þrátt fyrir miklar breytingar seinustu þrjá mánuði í mataræði virðist ekkert vera að breytast. Ég byrja daginn með annaðhvort skyri eða brauðsneið og svo drekk ég venjulega 1/5l - 1l fyrir hádegi. Í hádeginu fæ ég mér disk af salati, papriku, (stundum gúrku) túnfisk og smá fetaost með. Svo lítið vatnsglas til að skola með. Svo drekk ég 1/5l -1l eftir hádegi ásamt að fá mér ávöxt eða brauðsneið kl 3 í kaffinu. Í kvöldmat borða ég mjög mismunandi mat en...

Varðandi Barmmerki og aðrar söluvörur með mans eigin efni. (1 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Hefur einhver reynslu á að setja teikningarnar sínar og list á vörur eins og barmmerki, bókamerki, eða boli og svo selja hérna heima eða á netinu? Hef verið að íhuga þetta í svolítin tíma hvort þetta gangi. Og ef ég ætla að panta svona þá þarf ég að vita að þetta muni seljast að einhverju leyti. Þá fer maður að pæla hvort maður þurfi ekki að vera eitthvað þekktur á netinu eða vera að teikna ákveðna fan-hluti sem bókað seljast eða? Er hægt að græða eitthvað á svona á litla íslandi? Endilega...

Gæði? (17 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Var að fjárfesta í canon eos 400d með 18-55m linsu, og þar sem ég fékk hana í gær *hem* þá er ég ennþá rétt að prufa mig áfram á stillingar og lesa mig til um virkni hennar og tækni. En það sem ég var að pæla, var að ég er með still á L (með svona 90° smooth boga)gæði, en þegar ég tek myndina inn í tölvuna og opna í photoshop þá er myndin kannski ca. 3000x2000 pixlar en aðeins 72 dpi resolution….er ég að gera eitthvað vitlaust eða á þetta að vera svona? ER ekki alveg að skilja þetta og er að...

Eru Íslendingar dónalegir að eðlisfari? (62 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ferlega getur fólk verið dónalegt, þó sér í lagi íslendingar virðist vera. Ekki aðeins er þjónustufólk dónalegt og óáhugasamt um vinnuna sína svo að tilfinningin sem maður fær er að maður er að trufla þau og ætti helst að hverfa af yfirborði jarðar, heldur virðist þessi dónalegheit vera að smitast í aðrar atvinnugreinar. Við reyndum að panta flug til Bandaríkjanna og það var eins og konan sem var að bóka þetta allt fyrir okkur væris svo óhæf að við þyrfum að mata þetta í hana, og jafnvel að...

Langar í myndavél... (22 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Fyrsta skipti sem ég skrifa hérna, þó ég hafi flakkað hérna inn öðru hverju. Svo er mál með vexti að mér hefur dauðlangar í myndavél svoooo lengi. Alvöru myndavél sem tekur fallegar alvöru myndir… Átti myndavél sem , því miður, var reddað gegnum vin föður míns og var frá fyrirtæki sem ég hef aldrei um áður. Tók hrikalegar myndir þegar ég notaði flashið, svo að allt var BJART fremst og allt dökkt aftast..og ekkert sem ég gat gert til að breyta þessu nema að taka myndir um hábjartan dag þegar...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok