Er ekki viss hvort ég er að senda þetta á réttan stað en verður bara að hafa það. Málið er að ég á Canon prentarann Pixma IP4500 og mig vantar að fylla á blekið í honum. Að kaupa blek í prentara í dag er ekkert grín svo ég reyni yfirleitt alltaf að gera góða verðsamanburð áður en ég held af stað. Hingað til hef ég verið að kaupa þetta hefðbundna fyrir akkúrat þennan prentara en svo rakst ég á prentvorur.is og þá á þetta

http://prentvorur.notando.net/product/details/product_id/352

leitaði upp minn prentara og tegund og þessi tegund af bleki dettur inn, og stendur að þetta sé samhæft. Ég geri þá ráð fyrir að það er hægt að nota þessa týpu af bleki fyrir prentarann, en meira veit ég ekki um þetta blek. Er þetta jafngott blek og Canon týpan, jafn mikið magn, endist jafn vel, sömu gæði? Svo er ég ekki með neitt ákveðið nafn á þessu bleki frá síðunni til að googla, næ ekki í prentvorur í síma og leita því til ykkar.

Er ekki viss hvort einhver þekki til í þessum efnum en ákvað að allaveganna spyrjast fyrir og sjá hvort einhverju hefur reynslu á þessu bleki.

Með fyrirframþökk fyrir alla hjálp :)
cilitra.com