Með vafamál einsog með hvort um er að ræða mark eða ekki mark þar sem boltinn fer yfir línuna eða ekki, þá finnst mér að það ætti að taka tillit til myndavélar en ekki dómara, EF dómarinn er ekki viss. Annars á leikurinn að vera alveg einsog hann er, því að ef fótbolti verður svona einsog í henni BNA, þar sem ameríski boltinn er bara ekkert nema auglýsingar og tæknidrasl, þá guð minn góður, hætti ég að horfa á þetta. Bara mín skoðun.