Ég sá nú fyrir nokkrum árum einhverja sjónvarpsmynd um geimveru sem fær einhvern jarðarbúann í lið með sér á flótta og viðurkennir það fyrir honum að hann komi úr framtíðinni þar sem mannkynið er búið að gerbreyta sér og hálfeyða jörðinni, fjölgun fæst fram með klónun og allir eru sterílir. Geimveran (og félagar hans sem létu lífið við hrap skipsins) voru í könnunarleiðangri, einmitt til að finna ástæður þessa ástands þeirra. Myndin sjálf var hálfgert b-drasl, en hugmyndin á bakvið uppruna...