Party Zone 2000 geisladiskur ? Ég ákvað að senda hingað inn smá pistil, og láta á það reyna hvort hann verði samþykktur sem grein, og ef þú ert að lesa þetta var minn skeleggi pistill eflaust samþykktur.

Einhverntíma öðru hvoru megin við áramótin las ég það einhversstaðar, annaðhvort á www.pz.is eða í pósti frá PZ spöðunum að það ætti að koma út safndiskur með öllu því besta úr þættinum fyrir árið 2000, og það ekki einfaldur, heldur x2faldur! Annar átti að innihalda öll topplög ársins og hinn nokkur vel valin lög, allt saman mixað saman og alles.

Diskurinn átti að koma út hjá Phew og síðan liðu margir mánuðir og ekkert hefur gerst, allavega ekki svo ég hafi heyrt.

Ég á nokkra af þessum gömlu diskum, og þeir eru bara nokkuð massive og þess vegna var ég að spá hvort að þessi 2000 diskur kæmi yfirleitt út.

Ef það er einhver hér á huga sem veit meira um þetta mál, endilega láttu ljós þitt skína og fræddu okkur hin.