Það hefur verið sýnt fram á óskeikulan hátt að óbeinar reykingar eru nálægt jafnskaðlegar og beinar reykingar. Og hugsið nú aðeins andremmuna sem fólk sem ekki reykir andar að sér samfara reyknum. Haukur Mortens heitinn, sá mæti söngvari dó úr lungnakrabbameini en hann reykti aldrei, performaði alla sína tíð á skemmtistöðum sem voru mettir af tóbaksreyk. Þegar þú reykingamaður góður andar frá þér reyknum sem þú hefur sogið í þig, þá stjórnar þú því varla hvert hann fer, nema loftræsting sé...