Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zorglubb
zorglubb Notandi frá fornöld Karlmaður
4.002 stig
Áhugamál: Danstónlist, Ljóð, Kettir
—–

Re: Ritstuldur.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Spurningin er, er súkkulaðihönklögfræðingurinn með greiða inni hjá sjálfstæðisflokknum? Ætli hann sleppi ekki með þetta? Til fjandans með aurapúka og uppalýs, lifi byltingin!!

Re: hvar fást bestu "myndvinnslu" tölvurnar?

í Grafísk hönnun fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Apple er eins og bíll með húddið logsoðið fast,,, fín í grafíkvinnslu en virkar bara ekkert í neitt annað. =o)

Re: Þynnka dauðans!!

í Djammið fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Hvernig væri bara að hafa stjórn á drykkjunni?!? Drekka minna, drekka nóg af vatni, og ekki drekka á fastandi maga.

Re: Óþolandi einokunarstaða Flugleiða.

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Markaðurinn býður ekkert upp á meira en eitt flugfélag, staðreynd.

Re: Artwork nr. 45: 3d distortion

í Grafísk hönnun fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Segir, það. Alger steypa að mínu mati.

Re: fyrripartur!

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Þá land af bjánum stjórnist er heimskra reisa halli

Re: Grein um jafnrétti kynjanna

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Einstaklingur á ekki að fá starf bara vegna þess að viðkomandi er kona. Áður fyrr og þó sorglegt sé, í dag er þetta því miður öfugt, en þá á ekki að rísa upp til handa og fóta og einoka styrki og störf fyrir konur bara vegna þess að þær eru konur! Hvernig væri að læra heldur af fyrri mistökum og hafa fullkomið jafnrétti í þessum málum en ekki fara þá leið sem margar kvenréttindakonur vilja fara og ég mun ekki útlista hér.

Re: Við þessu er aðeins eitt gott svar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Segir það. Eldar fær stóran púnkt fyrir ítarleg svör sín, mér hugkvæmdist það ekki að íslendingar hefðu greitt atkvæði sitt með stofnun ríkis gyðinga. Ég er á móti þessu stríði og sé ekki annað en öfgahópar beggja megin hafi komið þessu stríði af stað. Málið er kannski að innan palestínuaraba eru öfgamennirnir sjálfstæður hryðjuverkahópur sem virðist alls ekki undir neinni stjórn Palestínskra yfirvalda, eða neinna annara. Innan raða ísraela eru öfgamennirnir við stjórnvölinn, eru yfirvaldið.

Re: Hundrað hæðir

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég biðst forláts á því að hafa hent þessu ljóði aftur inn, þetta kallast víst athyglissýki, var bara svekktur yfir því að þetta ljóð komst ekki einu sinni á forsíðu ljóðaáhugamálsins um daginn.

Re: Timo Maas á Gauknum 6.Okt

í Danstónlist fyrir 24 árum, 9 mánuðum
OMG!!!!!

Re: Undirskriftarherferð vegna árása Ísraela

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Og þó utanríkisráðherra fordæmi þessar árásir (hefur hann ekki þegar gert það??? Ef ekki þá er hann meiri leikbrúða USA en ég hélt) Þá munu þessir þverhausar við botn Miðjarðarhafs ekkert hlusta. Ísraelsmenn virða Sameinuðu þjóðirnar að vettugi, þeir eru farnir að skella skollaeyrum við þrýstingi Bandaríkjamanna! Hlusta þeir á Halldór? Niiii…

Re: Trú, blekking?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Gamlar eða ekki gamlar kenningar. Í heimspeki eru engar concrete sannanir, aðeins kenningar, sem svo eru aðeins samantekt á því sem almúginn heldur, fært í faglegt form. Einn stór munur er á trúarbrögðum og heimspeki. Heimspekin leggur fram kenningar, trúarbrögðin einnig en líta á þær sem óhreyfanlegan sannleika.

Re: Daður, má eða má ekki.

í Rómantík fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Daður getur verið að reyna beint við einhvern eins og margir sjúklega afbrýðisamir vitleysingar halda, eða bara vinsamlegt blíðuhót eða hrós sem er oftast nær ekkert meira en það. Ég skil ekki konur, og menn, sem líta maka sinn hornauga og trúir framhjáhald upp á ef hann lítur girndaraugum eitt augnablik á einhvern/einhverja aðra eða talar við hana á vinsamlegum nótum. Sambönd ættu að byggjast á trausti, ekki því gagnstæða.

Re: Undirskriftarherferð vegna árása Ísraela

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég held að ísraelskir byssglaðir hermenn og grjótkastandi sjálfsmorðsprengjandi palestínumenn gefi nú nettan skít í það hvað einhverjir frónbúar nyrst í rassgati halda um þetta mál.

Re: Minning um ***

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Deeq, roðnaðirðu ekki upp í hársrætur? =o)

Re: Vilt mök

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
hmm, hérna, farðu bara að djamma vinan, og snúðu þér að öðru en því sem þú heldur að sé ljóðagerð hjá þér.

Re: smá álit?

í Grafísk hönnun fyrir 24 árum, 9 mánuðum
ah, kannski, en ég er ekki hönnuður, kann ekki html/xml/css eða hvað sem það heitir og hef ekki tíma til að grúska í því. Svo er tölvan mín biluð þannig að maður stelst í vinnunni til að búa til grafíkina. =)

Re: Eject takkinn...

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég elska takkann á tæki foreldra minna, hann er með þrjár skipanir í einum takka rewind, eject og power off… fínt ef þú klárar mynd, ýtir á hann og skellir þér í föt og spólan komin út tilbúin til að skila =)))

Re: Ég þurfti að stela frá þjófi ... !

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Eða kýla hana kalda þegar hún kemur til dyra, nii, kannski of mikið bráðlæti =)))

Re: Dreptu í!...nahh =p

í Heilsa fyrir 24 árum, 9 mánuðum
reykja áfram til að bögga þá sem reka áróður gegn þeim,,, úff, kannski væri ágætt hjá reykingafólki að spyrja sjálft sig hversvegna það byrjaði að reykja og spyrja sig svo hvort það sé hluti af reykingaþrælum eða hobbýreykingafólki.

Re: Eiturlyf

í Heilsa fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það verða einhverjar reglur að vera til staðar í sambandi við þessi efni, kannski mætti lögleiða gras, hass, sveppi, en allt hitt á að banna áfram. Sumir segja að við höfum rétt til að kjósa sjálf okkar gjörðir en ef svo væri, gæti nú hver sem er rölt nakinn niður laugaveg, skitið á næsta bekk og skotið sig svo í hausinn. Allt af þrennu framantöldu er nú varla leyfilegt er það? =)

Re: The end

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
hmm

Re: TEST TEST TEST TEST TEST EKKI OPNA!!!

í Tíska & útlit fyrir 24 árum, 9 mánuðum
æjæjæ, springur tölvan mín núna? =o(

Re: Davíð Oddson gataður í framan?

í Tíska & útlit fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Mér finnst fólk með kíló af pinnum og hringum framan í sér ekki bera mikla virðingu fyrir andlitinu sínu.

Re: Ruby Tuesday vs Hard Rokk

í Matargerð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Grillhúsið toppar alla þessa burger staði, þægileg mússig, snilldar matur og fínasta þjónusta. Hard Rock er varla svipur hjá sjón í dag og er í raun sorglegur, þó maturinn sé enn sæmilegur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok