Lenti í því um daginn að kunningjakona mín
kom í heimsókn, og þegar ég segi kunningji þá
á ég við að hún er fyrrverandi kærasta bróðir
míns og ég þekki hana voða lítið. Allavega,
hún treður sér inn þó svo ég hafi sagt við
hana að ég gæti ekki boðið henni inn, jújú
við setjumst og förum að kjafta og hún spyr
hvort ég eigi ekki ávaxtasafa og hjálpar sér
svo sjálf. Þegar hún er farin tek ég eftir því
að hún hafði þambað tvo bjóra sem voru inni í
ísskáp án þess að ég tæki eftir því og ég átti
ekki einusinni þessa bjóra og bauð henni því
síður uppá þá! Frekjan sú arna.
Í gær tek ég eftir því að rándýrt krem er horfið
og þegar ég fer að athuga betur þá vantar mig
púður og varalit. Ég fer að velta fyrir mér að
miðað við hvernig hún óð hérna um, að þá gæti
verið sjens að hún hefði hreinlega stolið þessu
frá mér, svo ég leita aftur að þessu árangurslaust.
Svo ég fer að hugsa með mér að ef ég myndi hringja
í hana og spyrja hana útí þetta myndi hún einfaldlega
neita og þessvegna fela dótið! Þannig að ég ákveð að
leika nú bara sama leikinn og hún lék !

Svo ég fer til hennar og fyrsta sem ég sé þegar
ég labba inná klósett hjá henni er kremið mitt!
Og það næsta sem ég sé er púðrið mitt!

Ég sting þessu í vasann, skjálfandi á beinunum,
kem útaf klóstinu, þakka fyrir mig og fer.
Þegar ég er komin út í bíl hringdi ég í hana
og sagði; “******, Komdu aldrei aftur heim til
að stela, píkan þín!” Og svo skellti ég á.


————————–


ÉG BARA STAL ÞESSU AFTUR !!!!!!!!!
HA HA HA !
Hvað finnst ykkur um þetta???
Nú vil ég taka skýrt og greinilega fram að ég
er ekki þjófótt!
Þetta var einfaldlega dót sem ég borgaði fyrir
svo ég tók það bara aftur. !