Halló!

Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir undirskriftarherferð á vefsíðu sinni WWW.PALESTINA.IS þar sem þess er farið á leit við utanríkisráðherra Íslands að hann fordæmi árásir Ísraelshers, ólöglegt landrán Ísraelsmanna, eyðileggingu palestínskra heimila og eigna og beiti áhrifum sínum til þess að Ísraelsríki standi við gerða samninga, fari að samþykktum Sameinuðu þjóðanna og hlíti alþjóðalögum.

PS Kíkið á http://electronicintifada.net/ ef þið hafið áhuga á málefnum Mið-Austurlanda og fjölmiðlaumfjöllun frá Palestínu/Ísrael.

-Eldar
(varaformaður Félagsins Ísland-Palestína)