Við Deeq ákváðum fyrir nokkrum vikum að fara í smá ljóðakeppni og skrifa ástarljóð til hvors annars. Þetta er afraksturinn minn:

Með stjörnur í augum
líkt og dimmblár himininn
hugsa ég um þig.
Í draumi dags
líð ég áfam,
stjörnur augnanna
berast með vindinum
sem og nýfallin lauf,
fallin af blómstruðu tré.

Og þú ert horfinn.