Hmm, þetta var nú ekki svona slæmt. Muniði ekki eftir Stefnumótakvöldunum á Gauknum? ég mætti á þrenn og í öll skipti var pakkað eins og í síldartunnu. Ógleymanlegt þegar ég dró þýskan vin minn á kvöldið þar sem Sjón og Biogen tróðu upp,, við sátum við barborðið og á stóru borði Björk og vinir hennar,, Vinur minn varð næstum óðamála þegar þessi ofurstjarna settist fyrir aftan okkur en ég sjálfur svona sæmilega uppveðraður. Skárra varð það varla þegar ég fór á salernið. Þegar ég kom til baka...