Jafn viðamikið fyrirbæri og iðnbyltinguna þýðir ekkert að skilgreina sem vont eða gott, svart eða hvítt, slík flokkun er einfeldningsleg og vitlaus. Heilmargt gott varð til af þessari byltingu en einnig margt slæmt.
Tja, maður á aldrei að segja aldrei,, sem efahyggjumaður slæ ég þó varnagla á allt sem tengist æðra máttarvaldi því það er mín educated niðurstaða og skoðun gagnvart trúarbrögðum, og ekki upp úr þurru því bæði hef ég lesið mér til um hin ýmsu trúarbrögð og skrifað ritgerðir, hmm reyndar bara eina eiginlega ritgerð en hana gerði ég við lok framhaldsskólanáms, en nokkrar greinar og aðra punkta fram á þennan dag. Svo er gott rifrildi um trúarbrögð alltaf liðkandi fyrir málbeinið :) Það er margt...
Hmm, það skiptir meira máli að fólk haldi skoðanaskiptum fyrir ofan það level að fólk sé ekki að fylla vefinn af sorpkjafti og endalausum persónulegum árásum, rusli og meiðandi kommentum. Mér er drullusama um þig helvítið þitt :) hehe
Hmm já oft er það líka spurning um hópeðlið, einstaklingur fer með vinum sínum þar sem margir reykja, og hann situr með þeim því þetta eru vinir hans. Algert bann við reykingum á svona stöðum er sjálfsagt helst til of langt gengið og kalla ég slíkt offors. En of oft hefur maður orðið vitni að lélegri skiptingu svæða í reyk og reyklaus, jafnvel reyk og reyklaus borð næst við hvort annað. Amk mætti skylda veitingastaða eða kaffihúsaeigendur sem hafa slík svæði til að hafa fullnægjandi...
Ah, en fólk sem reykir er kannski að neyða fólk sem vill annars kíkja á uppáhalds kaffihúsið sitt til að forða sér undan reyknum og leita annað, eða hætta við kaffihúsaferðina, bara hugsanlegt dæmi, eða eru reykingamenn eins og þú gjarnir á að eigna sér ákveðin svæði með því að svæla aðra út og iðka rétt sinn með tillitsleysi við þá sem reykja ekki?
Þangað til staðir sem leyfa reykingar eru vel einangraðir frá öðrum svæðum þá eru óbeinar reykingar enn vandamál. Helst þyrfti að stúka reykingasvæðin af með þéttum veggjum.
Þetta ríkisvald er náttúrulega nuts,, bönnuðu bjór í alla þessa áratugi, bönnuðu Fresca og M&M í áraraðir,,, en ég er fylgjandi háum skatti á tóbak. Ef menn færu út í bann þá yrði fjandinn laus, þessi leið er því skárri.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..