Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zimmerman
zimmerman Notandi frá fornöld 62 stig
Áhugamál: Rokk, Kvikmyndir, Bækur

Re: Vanmetnasta íslenska hljómsveitin

í Rokk fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Mér líst vel á þessa umræðu Fritz, þú gætir etv. skrifað grein um þetta og þar væri hægt að ræða þetta á málefnalegan hátt, út frá öllum hliðum þessa flókna máls.

Re: Matchstick Men-Widescreen

í Kvikmyndir fyrir 22 árum
Matchstick Men virðist eiga að vera einhverkonar “Sting” mynd, con-artista mynd með einhverju rosa twisti á að fá þig til að pissa í buxurnar af undrun einni saman. En plottið er bara örþunnt og leysist út í eitthvað melodrama hjá yfirborðskenndum persónum sem maður fær enga samkennd með. Persóna Cage var með öllu óáhugaverð, og þessi anal smámunasemi og áráttur hans voru til þess eins gerðar að fela það. Sam Rockwell góður! góður að gera hvað, hans persóna var svo ómerkileg og óáhugaverð að...

Re: 5 fallegustu

í Rokk fyrir 22 árum, 1 mánuði
Var einmitt að líta á High Fidelity og fannst nú tilvalið að gera einn top 5: Martha - Tom Waits Waits syngur hér um daga þar sem rósir og kveðskapur réðu ríkjum. Söngur um ást sem aldrei varð, en þó með von og bjartsýni um ást eldri borgara. Atmosphere - Joy Division Ian Curtis var nú sjaldan í sérstaklega “fallegu” fasi, en hér fær hann góða aðstoð félaga sinna sem útsetja þetta lag einstaklega smekklega, hljómborðið er þá sérstaklega vel heppnað. Our House - Crosby, Stills, Nash & Young...

Re: Internet music database?

í Músík almennt fyrir 22 árum, 5 mánuðum
www.allmusic.com

Re: Somewhere In Time

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Alexander var reyndar fæddur í Makedóníu (ekki að það skipti höfuðmáli.) Og hvað varðar fullyrðingar greinahöfundar um “barnaperraskap,” þá eru þær væntanlega ekki á rökum reistar. Alexander hinn Mikli átti hinsvegar karlkyns elskhuga að nafni Hephaestion fram að 23 ára aldri ( eins og tíðkaðist á þeim tíma, ) en eftir það eignaðist hann konu og fjölskyldu. Ef greinahöfundur telur sig geta fundið heimildir fyrir barnaperraskap Alexanders, skora ég á hann að birta þær. ( sennilega væri...

Re: Fimm uppáhaldssöngvararnir mínir!

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Abesynth: Þetta er nú það fyndnasta sem ég hef heyrt lengi. Það að segja að Chris Cornell sé syngjandi með eigin saur í hendi er nú nógu barnalegt, en að þú skulir reyna að halda því fram í sömu grein að James Hetfield sé eitthvað skárri, það er ekkert nema hlægilegt. Hann er meistari allra klósettsöngvara, og reyndu ekki að neita því. Söngrödd hans hljómar alltaf eins og að hann glími við langvarandi vandamál á salerninu.

Re: Stone Roses

í Rokk fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Taktu þetta ekki svona nærri þér, yaf, ég sagði ekkert um það að Garsil ætti ekkert kredit skilið. Það eina sem ég vildi sagt hafa að upphaflegi höfundur greinarinnar ætti hugsanlega að fá nafn síns getið, Garsil hefur sennilega bara gleymt því…

Re: Stone Roses

í Rokk fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þess má geta að upphaflegur höfundur þessarar greinar ber nafnið Stephen Thomas Erlewine.

Re: Íslenskir tónlistargagnrýnendur

í Músík almennt fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þeir verða samt að vera taldir ábyrgir orða sinna.

Re: Íslenskir tónlistargagnrýnendur

í Músík almennt fyrir 23 árum, 2 mánuðum
“Og svona að lokum þá vil ég benda á hversu þversagnakennt þetta er allt” Það sem ég var að meina að þetta er allt í kolvitlausum hlutföllum. Þegar meira en hálfur textinn fer í það að greina frá sögu hljómsveitar sem er búin að vera til í fjölda ára og einungis ein málsgrein um plötuna, er það þá frekar lítil gagnrýni á plötuna. “Ég hreinlega skil ekki hvað þú meinar með þessu gesta gagnrýna dæmi. Hvað meinar þú að þeir kynni þá sem blaða menn sánd?” Það sem ég meina er að þeir eru ekki...

Re: Íslenskir tónlistargagnrýnendur

í Músík almennt fyrir 23 árum, 2 mánuðum
“Og svona að lokum þá vil ég benda á hversu þversagnakennt þetta er allt” Það sem ég var að meina að þetta er allt í kolvitlausum hlutföllum. Þegar meira en hálfur textinn fer í það að greina frá sögu hljómsveitar sem er búin að vera til í fjölda ára og einungis ein málsgrein um plötuna, er það þá frekar lítil gagnrýni á plötuna. “Ég hreinlega skil ekki hvað þú meinar með þessu gesta gagnrýna dæmi. Hvað meinar þú að þeir kynni þá sem blaða menn sánd?” Það sem ég meina er að þeir eru ekki...

Re: Led Zeppelin - Led Zeppelin II

í Rokk fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Ef þú fílar Zeppelin ættir þú að kaupa þér safnplötuna.” “… en ég mæli eindregið með því að þú hlustir á Remasters.” Ef menn eru eitthvað að “fíla” Led Zeppelin, ætti fljótlega að vera ljóst að Remasters er kolómögulegur diskur. Virkar sjálfsagt ágætlega fyrir hinn almenna hlustanda sem hefur einungis áhuga á Stairway to Heaven. En ef menn hafa einhvern áhuga á Led Zeppelin verður flótlega ljóst að þeir komast ekki vel fyrir á safnplötu. Þarna vantar nefnilega mikið af þeirra besta efni. Á...

Re: Gítarleikari af guðs náð!

í Rokk fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Pixies eru klárlega ekki frá Seattle, þau komu nefnilega frá Boston (eins langt frá Seattle og hægt er!) Posies komu hins vegar frá Seattle.

Re: I am the lizard king...

í Gullöldin fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hefur hvarflað að ykkur, gott fólk, að kvikmyndir eru ekki endilega hinn eini sannleikur? Gæti hugsanlega verið að kvikmyndafyrirtæki hagræði sögulegum atburðum þannig að þeir verði markaðsvænni fyrir vikið? Þó svo að Oliver Stone hafi gaman af því að gera sögulegar myndir, þýðir ekki að þær séu allar réttar(reyndar er oftast um að ræða ansi sértækar túlkannir.)Doors myndin er enginn undantekning, þar er einungis ‘rokkara’ hliðin á Jim Morrison skoðuð, ekki skáldið, listamaðurinn eða...

Re: Led Zeppelin

í Gullöldin fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nei, nei, nei þetta er tóm vitleysa, Led Zeppelin hétu aldrei Yardbirds. Þegar Yardbirds meðlimir sögðu skilið við hljómsveitina ‘68 átti Jimmy Page enn eftir óuppfylla plötusamninga. Þá réði hann nýja hljómsveit (Robert Plant, John Bonham og John Paul Jones) þeir íhuguðu um skamma stund að spila undir nafninu ’New Yardbirds' en sagan segir að Keith Moon hafi fellt það nafn og sagt að það nafn myndi hrapa eins og loftskip úr blýi… Semsagt Jimmy Page var í Yarbirds, en Zeppelin var ný...

Re: Hvaða lög spilaði nick cave?

í Rokk fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þettta á við um fyrri tónleikana. Lagavalið var mjög svipað því og á: http://www.nick-cave.com/reviews/reviews/concert_vienna_burg_theater_october_30_2002.shtml Ég man ekki röðina allavega byrjaði hann á Mercy Seat. Eftirfarandi lög tók hann örugglega: Henry Lee, God Is in the House, Haleluja, Darker with the day, Into My Arms, West Country Girl, Do you love me pt.2, People aint no good svo tók hann einhver ný lög og einhver fleiri sem ég man ekki í augnablikinu. Í fyrra uppklappi tók hann:...

Re: um Sigur Rós

í Músík almennt fyrir 23 árum, 4 mánuðum
“Jimmy was not the first person to use a violin bow with a guitar, that honour goes to Eddie Phillips of Creation, one of the bands managed by Shel Talmy, whom Page worked for.” http://www.buckeye-web.com/ifmtl2.html#2.2

Re: Mike Patton

í Rokk fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þess má einnig geta að Patton hefur gefið út tvær sólóplötur: Adult Themes for Voice sem kom út 1996 og Pranzo Oltranzista kom út 1997. Þessar plötur eru reyndar illfáanlegar á Íslandi býst ég við. Fyrri platan inniheldur ekki vott af hljóðfæraleik, heldur einungis rödd Pattons og ýmsar tilraunir sem hann gerði á einhverjum FNM túrnum. M.a. tróð hann litlum míkrófóni ofan í vélindað á sér og tók það upp. Á seinni plötunni fékk hann til liðs vig sig nokkra færa tónlistar menn þar á meðal alt...

Re: Smá yfirlit yfir sögu Pearl Jam

í Rokk fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Eddie Vedder var aldrei beint meðlimur í Temple of the Dog (enda þekkti hann Wood ekki neitt) Málið var að Pearl Jam voru að byrja á svipuðum tíma og Vedder kíkti í stúdíóið og söng bakraddir í nokkrum lögum og skipti aðalsöngnum með Cornell í Hungerstrike, meira var það ekki. Og þess má geta að Matt Cameron trommaði á þeirri plötu. Útgáfuferill Brad er nú ekki alveg svo stuttur. Á því herrans ári 1997 kom út ‘Interiors’ og nú í ágúst kom ‘welcome to discovery park.’ Einnig er ekki rétt að...

Re: Coldplay

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Síðustu tónleikar þeirra hér á Íslandi voru ömurlegir. Tónleikahaldararnir fengu þá snilldarhugmynd að Coldplay væri “fullorðinshljómsveit” sem fól í sér að hafa hlustendavæna upphitunarhljómsveit, bjór (reyndar jákvætt) og stórfellda takmörkun á hávaða. Sándið var eins og að maður væri í vondu party, Coldplay voru reyndar ágætir, en ég hefði allt eins getað hlustað á diskinn í lélegum græjum.

Re: www.moonstyx.com

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Fínir tónleikar sæmilegt kaffi. Síðasta lagið var áhrifamikið og skemmtileg leiktilþrif hjá Elijah Ég vil óska ykkur sérstaklega til hamingju með myndatökumann ykkar. Sviðsframkoma hans var til fyrirmyndar og þótti mikil skemmtun fólgin í því að fylgjast með fagmannlegum snúningum á tökuvélinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok