Mér finnst undarlegt orðalag hjá þér að tala um ,,auðvelda framhaldsskóla“. Framhaldsskólar bjóða upp á mismunandi brautir sem eru misauðveldar. Það er líka afstætt hvað er auðvelt, því að fyrir fólk með stærðfræðhæfileika sem gengur illa að læra tungumál væri málabraut líklega erfiðasta brautin en stærðfræðibraut sú auðveldasta. Ef þú ferð ,,í gegnum framhaldsskóla án þess að læra nokkurn skapaðan hlut” ertu væntanlega ekki að leggja þig fram og það getur væntanlega ekki talist góður...