Hef lent í því núna tvisvar í Sims 2 að kallinn minn getur ekki notað klósettið, þó að hann hafi oft notað það áður og sé einn inni á baði! Ég get klikkað á klósettið og sagt ,,Use“ og hann labbar að klósettinu og stendur fyrir framan það… og ekkert gerist. Hann pissar frekar á sig heldur en að nota það.
Svo ákvað ég að fara í Build Mode og eyða bara þessu gallaða klósetti en þá kom ,,Can't select object in use”, þannig að ég þarf að gera moveobjects svindlið til að eyða klóstinu og þarf svo að kaupa nýtt sem hann notar með glöðu geði!

Þetta hefur gerst núna tvisvar og ég var að spá hvort einhverjir hafi lent í þessu sama, og hvort það sé eitthvað hægt að gera því það er frekar pirrandi, að þurfa að versla nýtt klósett með reglulegu millibili. Frekar pirrandi bögg semsagt.