Ég lenti í því áðan að simsakonan mín byrjaði bara allt í einu að öskra og óskapast og svo dó hún bara. Henni leið bara vel fram að þessu, húsið var í fína lagi og allt. Er svona dauði að ástæðulausu algengur í leiknum? Ég er bara með The Sims leikinn, enga aukapakka. Og svo annað sem var mjög skrýtið með þessa fjölskyldu, kallinn minn gat aldrei talað við konuna! Ég klikkaði á hana en þá kom bara “no action available” eða eitthvað svoleiðis, en kallinn gat samt talað við annað fólk og konan gat talað við kallinn, þau voru ástfangin og allt. Kannast fólk við þessi leiðinlegu bögg?