Jæja, núna er loksins komið að því, maður er að útskrifast úr menntaskóla og ætlar aldeilis að vera fínn á útskriftardaginn.
Ég er sem sagt að leita mér að dökkri, flottri buxnadragt í stærð 14-16. Hvaða búðir vitið þið um sem eru með eitthvað úrval af svona drögtum (má helst ekki vera neitt viðbjóðslega dýrt). Ég hef nefnilega ekki tíma til að rölta í hverja einustu búð í bænum svo þær sem vita eitthvað: endilega svarið þessu!