Drápskind, eiga ullarsokkar rétt á sér? Kannski er ég bara á allt annari hillu en restin af mannkyninu, þar sem ég er 103% trúleysingi, og bara helvíti sátt við það. Og talandi um helvíti, það er nú eiginlega bara eitthvað grýludiskótek, svipað jólasveininum í mínum huga. Meina, það er kannski heitt þarna niðri en þar stendur engin sólbrennd (dráps)kind með klaufir, heygaffal og horn potandi í Adolf Hitler. Ég get bara ekki trúað því.