Ég ákvað að senda þetta inn vegna þess að það er ekki neitt skemmtilegt búið að koma á nöldur í langan tíma.
Ég þoli ekki
- Fólk sem kann ekki stafsetningu.
- Þegar fólk skrifar enskuslettur, t.d. “TV-inu” í staðin fyrir “sjónvarpinu”.
- Fólk sem segir að Ísland sé “skítapleis” og að íslenska sé ömurlegt og lúðalegt mál.
- Þegar fólk talar ensku í staðin fyrir íslensku þegar það er ekki viðeigandi.
- Þegar tölvan mín frýs.
- Þegar fólk segir frosna/frosnaði í staðin fyrir frýs/fraus.
- Þegar fólk segir a-orðið.
- Þegar tölvan mín eða einhver önnur tæki fá sjálfstæðan vilja.
- Fólk sem hlær asnalega.
- Fólk sem segist hata einhvern sjónvarpsþátt, af hverju horfið þið þá á hann?
- Fíflið sem datt í hug að hafa sjónvarpsstöð sem heitir stöð 1 en er samt ekki stöð 1.
- Hraðahindranir.
- Bílaauglýsingar.
- Fólk sem fattar ekki þegar það er að hlusta eða horfa á sorp.
- Verð á DVD diskum.
- Ofsatrúarmenn sem vilja troða heimskulegu trúarbrögðunum sínum upp á aðra.
- Fólk sem heldur að þeirra skoðanir séu hinar einu réttu.
- Fólk sem hatar annað fólk þótt það hafi ekkert gert þeim neitt.
- Fólk sem vill banna hluti sem eru ekki hættulegir.
- Hálfvita sem misnota hluti sem eru ekki hættulegir, sem verður til þess að þeir verða bannaðir.
- ATI fyrir að vera ekki með Linux drivera fyrir skjákortið mitt.
- Verð á bíómiðum.
- Verð á nammi.
- Verð í Strætó.
- Þegar fólk skilur ekki merkingu orða en notar þau samt.
- Þjófa.
- Fólk sem heldur að gagnaafritun sé þjófnaður.
- Fólk sem lætur bjóða sér að horfa á ömurlega lélegar kvikmyndir.
- Fólk sem heldur að allar kvikmyndir sem eru ekki með ensku tali séu sjálfkrafa