Hjúkrunarfræðingar bera gríðarlega mikla ábyrgð í sínu starfi. Í öllum stéttum má finna rotin epli en ekki skyldi dæma heila stétt út frá þeim. Ég er sjálf að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur í vor, hef verið í verknámi á mörgum deildum auk þess að vera í sumarvinnu á enn fleiri stöðum. Því tel ég mig hafa töluverða reynslu af vinnu hjúkrunarfræðinga á ýmsum sviðum. Það er alveg sama á hvaða deild ég hef verið, alltaf má finna hjúkkur sem sinna starfi sínu af kostgæfni og aðrar sem fara...