Manstu ennþá þetta kvöld
Þegar við leiddumst í myrkrinu
Ég man

Nú geng ég ein í rigningunni
Og þú ert fjarlægur
Ég sakna

Eitt sinn straukstu hár mitt í nóttinni
Núna ligg ég ein og veit af henni í faðmi þér
Ég þrái

Þú gafst mér engin loforð
En hélst mér þétt að þér þegar ég grét
Ég elska

Elska og elska og elska til einskis