Sælt veri fólkið.
Ég veit ekki einu sinni hvort ég skrifa nafnið á hundategundinni rétt, sem ég eiginlega féll fyrir á dögunum. Þetta eru yndislegir smáhundar.Þessi fyrirspurn mín ætti nú helst heima á korkinum, en ég fann ekki hvar ég ætti að skrifa þar. (o:
En sum c, eru margar tegundir af Chicuacua tegundum til? Allar jafn litlar? Eru þær jafn mannelskar og stærri tegundir? Og síðast en ekki síst, hvað kostar hreinræktaður hvolpur?
Ég hef aldrei verið fyrir hunda, nema í fjarlægð. Ég hef aldrei treyst þeim fullkomleg, vitandi hvað þeir geta gert með sterku tönnunum sínum. En smáhundarnir eru svo sakleysislegir og mikil englaface að maður steinliggur!!
Hlakka til að heyra frá fróðari fólki. Ég hef aldrei átt hund á æfinni. Ég á páfagauk, sem lætur hafa fyrir sér, þessi elska, og svo á ég Guula gullfisk og félaga, en Gulli er á góðri leið með að yfirtaka búrið! )o:
Kveðjur á vefinn
Marzibil.