Veistu

að vonin hún vakir
við læstar dyrnar hjá þér
í svartnættismyrkrinu nærri
hún er
með náð sína og frið fyrir þig

HLUSTAÐU

heyrirðu ei höggin
er á hurðina örþreytt hún ber
viltu ekki opna þær vinur,dyrnar
fyrir voninni — og mér.