Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það sem þótti svona ógeðslegt voru þau ummæli að gyðingar hafi ekki barist á móti - það hljómaði dálítið eins og verið væri að segja að gyðingar í Evrópu hefðu verið lyddur og bleyður upp til hópa. Og ég mæli alls ekki með Svindler's List. Eina myndin sem mér þótti leiðinlegri en sú var hörmungin JFK með Kevin Codner (en þar sofnaði ég af leiðindum).

Re: Réttlæti daudarefsinga

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já, byssueignin getur haft sitt að segja. En mig grunar reyndar að byssueign geti haft fælandi áhrif, sérstaklega ef mönnum er leyfilegt að fela þær. Ef ég ætlaði að ræna einhvern, þá myndi ég hugsa mig tvisvar um ef hver einn og einasti gæti verið með litla byssu falda á sér og skotið mig þegar ég ætlaði að flýja. En, eins og afi sagði alltaf: “Enginn þarf skammbyssu. Og þeir sem segjast hafa þörf fyrir skammbyssu ættu ekki að fá þær.” Og ef þú sérð einhvern með hríðskotariffil (er almennt...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég skil ekki alveg hvað þú ert að segja. Hver er í árásarham? Eru leiðréttingar - ósköp sakleysislegar og sjálfsagðar - árásir? Já, þeir vissu af ofnunum. Það vita menn. En ég er ekki svo viss um að þeir hefðu getað gert eitthvað við þá. Sprengjur í dag -þessar kláru- hitta kannske ekki alltof vel, en þær eru þó mikil framför miðað við sprengjurnar þá -sem við getum sem best kallað heimskar- en þær virkuðu þannig að þeim var sleppt, helst úr mikilli hæð. Og hittu ekkert allt of vel. Og hvað...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Á milli “&eu” og “115038” á ekki að vera neitt bil í tenglinum. Hvers vegna gerist þetta?

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hártoganir? Ein leiðrétting af mörgum (og sú léttvægasta) tekin út og kölluð “hártogun”. Merkilegt. Annars var sú Palestína sem Bretar réðu mun stærri heldur þetta litla svæði sem menn kalla Palestínu í dag - Jórdanía var hluti svæðisins. Og hvernig Bretar réðu Palestínu var öðruvísi heldur en hvernig Danir “réðu” Íslandi a.m.k. frá 1874 (en ef minnið svíkur ekki, þá var það þá sem Ísland fékk eigin stjórnarskrá), og enn ólíkara eftir að Ísland fékk heimastjórn (sem mig minnir að hafi verið...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
aslar: Bæta aðeins við það sem Nuff var búinn að segja. “bandamenn vissu um útrýmingarbúðir Nasista alla tíð en ákváðu að gera ekkert” Hvað hefðu þeir átt að gera? Gera innrás án nægilegs undirbúnings, án nægilegs mannsafla? Kannske gera loftárásir á búðirnar? “Lokalausnin á gyðingavandanum” kom ekki fyrr en '42, minnir mig. “Sameinuðu Þjóðirnar að gera það sitt fyrsta verk að gefa þjóð Gyðinga Palestínu.” Hugmyndin um eitt ríki gyðinga er mun eldri en Sameinuðu þjóðirnar. Síonisminn kom...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nú? Hvenær fórum við að tala um Sex daga stríðið? Ég hélt að við værum ennþá á árinu 1948. Þá voru herir Jórdana, Egypta og svo framvegis á palestínska svæðinu.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þessi kort eru í öllum sögubókum handa menntaskólum, held ég. Og ég veit alveg að Ísraelar tóku megnið af því landi sem átti að verða palestínskt - en það voru óvinveittir herir þar, þannig að Ísrael hafði a.m.k. kjörástæðu til að taka meira land. Ef Suðurland væri í stríði við Norðurland, og færi í gegnum Vesturland til að komast þangað (og Vesturland, ef ekki beinlínis í stríði við Norðurland, er a.m.k. svo gott sem bandamaður Suðurlands), þá er Norðurland komið með góða afsökun fyrir því...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það var ekki búið að formlega stofna palestínskt ríki þegar Ísrael var stofnað, var það? Það landsvæði sem var eignað Palestínumönnum en Ísraelar tóku ekki, það tóku Egyptar og Jórdanir Jórdanía tók Vesturbakkann, Egyptaland innlimaði Gazasvæðið. Milliliðaþjófarnir eru Bretar, Tyrkir, Arabar, Rómverjar, Grikkir og Persar (ég kann ekki söguna lengra en þetta).

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér sýnist þetta aðallega vera spurning um trú hjá okkur. Það er að segja, ég trúi að þetta sé allt í manninum á meðan þú trúir að þetta sé a.m.k. að hluta til utanaðkomandi. Og það er býsna erfitt að komast að niðurstöðu í þessu, þótt það sé gaman að ræða þetta fram og til baka þegar tími gefst. Einmitt, Edison fann ekki upp ljósaperuna - einhvers staðar heyrði ég meira að segja að hann hefði stolið hugmyndinni frá einhverjum öðrum, Ungverja að nafni Tesla, ef ég man rétt. Og einhverjir...

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Gott og illt (eða rétt og rangt) þarf ekki að vera skilgreint eftir kristinni trú, eða nokkrum trúarbrögðum yfirhöfuð. Platón, Aristóteles, Kant, Mill og Nietzsche hafa allir boðið upp á skilgreiningar á þessu án tillits til kristni - og raunar er kristni undir áhrifum þeirra Platóns og Aristótelesar þegar kemur að siðfræðinni - og hvorugur þeirra var þó kristinn. Þegar bannað er í kristni að drýgja hór, þá er ekki verið að segja að fólk megi ekki stunda kynlíf og fá útrás fyrir kynþörf sína...

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
gmaria: Hóf? Það er auðvitað ósköp erfitt að skilgreina hóf - en við vitum öll hvað “hóf” er. Alveg eins og við vitum hvað “manneskja” er, án þess að geta gefið einhverjar nákvæmar skilgreiningar á því hvað manneskja er. Eða, með annars manns orðalagi: “Þótt við getum hvorki skilgreint reynitré né hest, þá vitum við alveg hvað við erum að segja þegar við segjum að reynitré er ekki hestur”. Og þetta er sérstaklega tilfellið þegar það kemur að hófi - nákvæmlega hve mikið er hóf fer eftir...

Re: Ástþór Magnússon

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og eins og einhver (man ekki hver) benti á, ef ég man rétt í umræðu um Úkraínumálið (er í gangi núna), þá er orðasambandið “staðfestur grunur” dálítið sniðugt. Ég meina, ef ég hef grun, þá hef ég grun, og þetta er öll staðfestingin sem þarf. Kallinn hefði e.t.v. frekar átt að tala um “vel rökstuddan grun” eða álíka?<br><br>Þorsteinn.

Re: Mjög Skemmtilegt

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Að segjast hafa tilkall til lands vegna þess að það standi í Biblíunni er allt annað en að segjast hafa tilkall til þess vegna þess að forfeðrar manns bjuggu þar fyrir 2000 árum. Hvorug krafan er svo sem neitt sérstaklega réttmæt, en það er þó stór munur það á: Í fyrra skiptið er vitnað í trúarrit (sem á að vera tímalaust), en í hið síðara er vitnað í söguna.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Auðvitað erum við geimverur - Jörðin er í geimnum, ekki satt? Við erum hins vegar ekki geimverur í þeim merkingum sem ensku orðin hafa - “alien” og “extra-terrestial”. Jafnvel þótt að líf hafi borist hingað með halastjörnu frá einhverri annarri plánetu. Einhver sem á norska langafa og langömmur (semsagt, allir langafar og allar langömmur voru norsk), en afar og ömmur, pabbar og mömmur hans verið sína hunds- og kattartíð á Íslandi, þá er sá einstaklingur Íslendingur, ekki Norðmaður. En þetta...

Re: Gyðingar og hættulegur, sorglegur misskilningur annara um þá.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ertu nú viss um að Hitler hafi verið illa við Frakka? Það voru nú einu sinni Frakkar sem vörðu Berlín, ef ég man rétt.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er ekki alveg að gleypa þessa kenningu um geimverur. Sérstaklega ekki þegar það kemur að pýramíðum Egypta, færni Inka með stein, þessa vegi Maja sem þú minnist á, og svo framvegis. Maðurinn er nefnilega alveg furðulega hugvitsöm skepna, frumleg og frjó í allri hugsun - þegar vel stendur á. Og ég held að við/þau hafi ekki fengið neina aðstoð við sín verk frá geimverum, ekki frekar en að maurar og termítar fái aðstoð okkar við að reisa hrauka sína - sem eru alveg stórmerkileg fyrirbæri út...

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Alveg rétt, ég tók ekki tillit til speglana og annað eins. En það sem ég sé í spegli eru ekki hlutirnir, heldur aðeins spegilmynd hluta. Ég get eftir sem áður farið í herbergið og þuklað á þeim (sem yrði ekki vinsælt, grunar mig, ef “hlutirnir” væru kvenmannslíkamar!). Og þegar ég skoða ljósmynd af herbergi, þá er ég einmitt að skoða það - ljósmynd, þ.e. eftirmyndir hlutanna, og ekki neitt annað. Eftir sem áður, þá er eitthvað efnislegt sem samsvarar því sem maður sér. Nema ef við tökum þá...

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En jafnvel þótt einhverjir sjái lengra inn á annað hvort útfjólubláa eða innrauða sviðið heldur en aðrir, þá myndu þeir ekki sjá neitt sem við hin sæjum ekki, nema þá að það séu til óefnislegar verur. Hlutir geta jú endurvarpað ljósi á mismunandi hátt eftir því hvernig ljósi er beint að þeim - og flugur eru taldar nema útfjólublátt ljós, a.m.k. virðast blóm aðeins öðruvísi í slíku ljósi (einhvern veginn er hægt að taka myndir af slíku) en ég kann ekki alveg skil á því - en þeir eru alltaf...

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Ég hef stundum reynt að koma þessu sjónarmiði á framfæri hérna …” Er þá ekki bara málið að endurtaka sig nógu oft - þetta síast hægt og rólega inn? Og ef maður vill taka þann pólinn í hæðina, þá er ekki að furða að kabbalismi hafi haft áhrif á Freud, Spinoza, Kafka, Einstein og Derrida - þeir eru allir gyðingar (a.m.k. aldir upp í gyðingdóm og góðum siðum, þótt þeir hafi e.t.v. síðar kastað trúnni), og kabbala (ef ég man rétt) er dulspekihreyfing innan gyðingdóms.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Svo sagð'ann eitthvað meira á föstudaginn síðasta, um sama efni.

Re: orkusteinar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú trúir að þeir virki, þá held ég að það sé vel mögulegt að þeir muni gera það; þá verða þeir eins konar “fókus” fyrir hvaða eiginleika í þér sem þeir eiga að búa yfir. Ég held að þeir geri ekkert sjálfir, heldur séu ekkert nema endurspeglun - kannske uppsöfnun - á því sem maður hefur í sér til að byrja með. Þannig að - ef ég hef rétt fyrir mér - þá gæti svarið verið bæði “já” og “nei”, og fer eftir því hvernig maður túlkar spurninguna.<br><br>Þorsteinn.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sem er einmitt það sem ég er að segja … Á barnsaldri lærir fólk að persónugera þennan hluta sinn, að líta á þennan styrk sem eitthvað utanaðkomandi afl - og venst aldrei af því.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Englar eru ekki meira út úr kú heldur en eitthvað óljóst “eðli mannsins”. Og eftir þeirri kenningu sem ég er að velta fyrir mér, þá eru englar raunar lítið öðruvísi en t.d. ást, reiði og sorg. Og ég vona að þú nennir að tala og hugsa um slíkt… Annars vandaði ég mig alveg sérstaklega við að segja ekki að *þú* nenntir ekki að hugsa - ég sagði aðeins að það að segja eitthvað vera endanlega útrætt mál sé gjarnan (semsé, ekki alltaf) fyrsta merki um hugsanaleti. Svona eins og eymsli í hálsi geta...

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En gallinn við það að líta á engla sem einhverjar verur sem stýra okkur og okkar siðgæði er sá, að það sviptir mann öllu sem hægt er að kalla sjálfræði, og þá um leið því sem háfleygir andans menn hafa kallað “mannlega reisn”. Þegar sjálfræðið er tekið frá manni, þá er ábyrgðin líka tekin, og menn fara að líta svo á að þeir beri enga ábyrgð á sínum gjörðum og sínu siðferði. Þá geta menn ekki sagt “Þetta góðverk er mitt verk,” heldur verða þeir að segja “Þetta góðverk er verk engla - ég var...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok