Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Pakistan

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Ég býst við að þú sért að tala um kaþolikka(sorry ef það er vitlaust skrifað) en kaþolikkar eru ekki sama og kristnir og kristið fólk drepur ekki annað fólk fyrir að vera ekki kristið.” Della. Heittrúaður kaþólikki er alveg jafn kristinn og heittrúaður mótmælandi. Menn af öðrum kirkjudeildum hafa líka pyntað menn og myrt fyrir lítið annað en að vera ekki kristnir. Nema þú viljir meina að menn hafi verið kristnir lengst aftur í fornöld, hætt því um langt skeið, og séu frekar nýlega orðnir...

Re: Staðreyndir um Shatila og Sabra flóttam.búðirnar.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mig grunar reyndar að fátækt í múslimaríkjum (veit annars ekki baun um það hvort að hún sé mikið útbreiddari þar en í hinum kristna heimi) geti að nokkru leyti skrifast á þessa forlagatrú sem mér sýnist vera svo ráðandi innan íslam (og er, skilst mér, hvorki í sérstöku samræmi við bókina, né að skapi margra valdhafa). Þá verður svo auðvelt að yppa öxlum og segja bara “Þetta er Guðs vilji, kemur mér ekki við. Ég greiði minn hluta í ‘fátækraskattinn’, ég þarf ekki að gera meira.”

Re: Re Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Enn og aftur sannast hve sárlega við þurfum nýtt form á Huga; form sem leyfir okkur að breyta póstunum okkar eftir á. Ég steingleymdi að minnast á það sem vakti einna fyrst klígju mína við öllu sem kallast “eðli” manna. Það var bókin “Rétt matarræði fyrir þinn blóðflokk”. Aðra eins endemis dellu og þvælu hef ég aldrei nokkru sinni lesið. Þar var verið að segja fólki hvað því væri “eðlilegt” að borða. Alger þvæla. Í fyrsta lagi byggði þetta aðeins á A, B, AB og O flokkunarkerfinu, en tók...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nei, ég er augljóslega ekki norskur, því ég er hallur undir þessa kenningu Barða (svo langt sem það nær) og hann er einmitt að segja að Íslendingar séu frekar fjarskyldur Norðmönnum - og skyldari Svíum og Dönum. Og þetta með skáldin er alveg satt; langflest hirðskáld Noregskonunga voru íslensk. Það voru einhverjir örfáir Norðmenn inn á milli, en þau voru langflest íslensk. Hins vegar búa mamma mín, systir mín og bróðir í Björgvin í Noregi. Og þar sem að þau búa þar, og flugmiði fyrir einn er...

Re: Re Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“…eða svo segir samfélagið okkur.” Og hverjum er ekki hjartanlega sama hvað samfélagið tautar og raular? Við ættum ekki að láta það hafa nein áhrif. Varðandi börnin: Ég hef einmitt heyrt þveröfuga hluti með börn og nammi: Ef maður lætur einn krakka fá nammi í poka og setur hann í hóp af öðrum börnum, þá gefur það með sér. Eða þá, ef nammi er sett í skál, þá byrja þau á því að skipta jafnt, svo enginn fái meira en aðrir. Hvers vegna ættum við annars að miða við börnin þegar við tölum um eðli...

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Pakistan

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æjá - ég orðaði þetta dáldið klaufalega. Þetta var a.m.k. það sem ég ætlaði að segja. Takk fyrir leiðréttinguna.

Re: Villuráfandi Kanar

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Einhver sagði: “Þar sem er of mikið af hermönnum er enginn friður. Þar sem er of mikið af læknum er enginn heilbrigður. Þar sem er of mikið af lögfræðingum eru engin lög.” Þá hefur hann væntanlega frekar átt við heildarfjölda lögmanna, en ekki hlutfall þeirra. Og merkilegur, þessi “ekkert er mér að kenna”-hugsunarháttur sem einkennir þetta fólk sem kærir af minnsta tilefni.

Re: Staðreyndir um Shatila og Sabra flóttam.búðirnar.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Þú villt kannski láta reka alla hvíta menn og svertingja burtu frá Evrópu eins og Bobby Fisher?” Ha? Er Bobby kallinn alveg búinn að tapa glórunni? Nú, ég skil, það hefur slegið saman Ameríku og Evrópu - eða hvað? Eða er maðurinn orðinn enn snarari? Og -senar og -iusar eru ekki Danir - þetta er mestallt fólk af íslenskum ættum sem tók upp eftirnöfn í Danmörku og hélt þeim þegar það kom heim.

Re: Öxulveldi Ömurleikans; Pakistan

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
biko: ??? Bull. Pakistan var stofnað eftir að Indland varð sjálfstætt - þá var ákveðið að hindúar fengju eitt ríki og múslimar annað. Það var árið 1947. Þá var Bangladesh hluti þessa múslimska ríkis - en það klauf sig frá þeim nokkru síðar, eða 1971. Þegar landinu var skipt fluttist fjöldinn allur af hindúum til Indlands, og fjöldi múslima flutti til Pakistan - og auðvitað var þó nokkuð um fjöldamorð báðum megin.

Re: Staðreyndir um Shatila og Sabra flóttam.búðirnar.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Þetta er álíka og ef Norðmenn myndu þramma til Yorkshire í Englandi, reka burtu englendingana þar og segjast eiga þetta landsvæði, vegna þess að þeir réðu þarna fyrir 1000 árum!” Æ, af hverju halda menn alltaf í sama gamla ruglið og búa til einhver svona “straw-man” röksemdafærslur? Aðalröksemdin fyrir því að Ísraelar eru þar sem þeir eru er einfaldlega ekki sú að þeir hafi einhvern tíma verið þarna, eða að Guð hafi lofað þeim þessu svæði, eða neitt slíkt. Hún er hins vegar sú, að SÞ...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Flest skáld Norðmanna voru líka íslensk. Sú kenning sem ég hef heyrt og þykir ekki ósennileg er kenning manns að nafni Barði og mig minnir að hann hafi verið Guðmundsson. En hann hélt því fram að Íslendingar væru ekki neitt sérlega skyldir Norðmönnum, en þeim mun meira skyldir Dönum og jafnvel Svíum, og byggði hann það m.a. á útfararsiðum Íslendinga (en þeir heygðu frekar sína menn heldur en að brenna þá, eins og tíðkaðist víst í Noregi), auk þess sem Freysdýrkun var mun algengari hér en í...

Re: Staðreyndir um Shatila og Sabra flóttam.búðirnar.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og til viðbótar; aðeins um þessa nefnd og niðurstöður hennar. Það er nú reyndar langt síðan ég las eitthvað að ráði um þetta, en mig minnir endilega að nefndin hafi m.a. komist að þeirri niðurstöðu að Ariel ætti helst aldrei að gegna opinberri stöðu aftur, a.m.k. ekki sem ráðherra eða neitt slíkt. En það er svo sem langt síðan, og þetta kann að vera misminni.

Re: Staðreyndir um Shatila og Sabra flóttam.búðirnar.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Fyrst þú sérð ástæðu til að senda inn greinarsvar sem grein (og ekkert við það að athuga, það er góð ástæða fyrir því: Hin greinin er orðin fáránlega löng og það tekur allt of langan tíma að ná í hana), þá ætla ég bara að skella inn sama svari og ég gaf idf þar. Ég vona að það fyrirgefist. Við vitum (flest) að arabar, Palestínumenn og múslimar hafa gert eitt og annað miður fallegt. Það er engin nauðsyn á að tíunda það, það eru (sem betur fer) frekar fáir sem líta á þá sem flekklausa engla....

Re: Staðreyndir um Sabra og Shatila refugee camps.

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Við vitum (flest) að arabar, Palestínumenn og múslimar hafa gert eitt og annað miður fallegt. Það er engin nauðsyn á að tíunda það, það eru (sem betur fer) frekar fáir sem líta á þá sem flekklausa engla. Hins vegar er algengara að menn sjái Ísraela sem menn með tandurhreinar hendur. Þetta er alls ekki ósvipað Seinni heimstyrjöld: Það þarf ekki að segja fólki - a.m.k. fáum - að nasistar hafi gert eitt og annað rangt, að þeir hafi haft margt ósmekklegt á samviskunni. Hins vegar kemur það flatt...

Re: Sesar

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En má ekki líka skrifa “Cæsar”, og jafnvel “Gaius Iulius Cæsar”, ef maður er í sérviskustuði?

Re: Villuráfandi Kanar

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Góð athugsemd. Það pirrar mig óttalega þegar fólk lætur einhverja Janka hafa áhrif á hvernig dagsetningar eru skráðar. Það er einfaldlega ekki góð íslenska að tala um “september hinn níunda” - það er eins og það sé verið að tala um konung. Og varðandi þessar verndargreiðslur: Ósköp skiljanlegt. Auðvitað eiga menn ekki að láta undan hótunum og þrýstingi af þessu tagi, og oftar en ekki tapa menn á því þegar upp er staðið, en það er samt skiljanlegt að menn geri það. Minnir mig á sögu af manni...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Risavaxið gyðingasamsæri … blablabla … gyðingar ráða öllu … blablabla … gyðingar eiga heiminn … blablabla. Kommon. Og já; “Það vita allir” er lygi. Hér um bil alltaf þegar fullyrt er um eitthvað, og síðan sagt “Það vita allir” (og sumir láta það jafnvel vera röksemdafærslu sína), þá er verið að ljúga. Svo einfalt er það.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Sem er í öllum meginatriðum það sama og að samþykkja hana.” Ehe - ég meina auðvitað “Sem er í öllum meginatriðum það sama og að kjósa hana.”

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var nú ekki að biðjast afsökunar á þessarri skýringu minni á “thulesol”, heldur á því að hafa sent sama svarið inn tvisvar. Ég þoli ekki þegar aðrir gera það - oftast er það óþolinmæði að verki, þó svo að hér sé um einhvern galla að ræða - og þoli það enn síður þegar ég gerir það sjálfur, jafnvel þótt það sé einhver galli í kerfinu sem veldur. En ég held nú að hún fyrirgefi mér þetta. “Thule” er nafn sem sumir halda að Ísland hafi fengið. Það var einhver forn-Grikki sem kvaðst hafa siglt...

Re: Réttlæti daudarefsinga

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En hvaða máli skiptir þótt einhverjum líði betur, vitandi það að morðingi fjölskyldunnar sé ekki að segja brandara og svo framvegis? Fangelsi eru ekki ætluð til þess að fórnarlömbum (og aðstendur eru líka fórnarlömb) líði betur.

Re: Hvað er guð og hvað er Jesú?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er ekki greinilegt af greininni að þú hafir vitað að “kristur” væri ekki sérnafn. Þú fórst með það sem sérnafn, þú notar það sem sérnafn. Jafnvel þótt þú gefir þessum “alheimsanda” eða “hreinu orku” þetta nafn.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Afsakið …

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú ræður raunar slatta. Þú ræður ekki hvernig veður er úti, og raunar ekki heldur hvort strætóinn sem þú tekur í skólann eða vinnuna velti í slaufunni við Ártúnsbrekku. Og maður hefur ósköp lítið um það að segja hvort einhver spíttaður sterabolti gangi upp að manni og mauki mann. En maður ræður því sem mestu máli skiptir. Maður ræður því hvernig maður bregst við. Það eru ekki eðlileg viðbrögð að fara í fýlu þegar það er rok og rigning úti - jafnvel þegar maður á að vinna úti allan daginn. Og...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
aslar: Varðandi “thulesol”: Þetta er ótrúlega lúmsk bjórauglýsing :)

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
aslar: Varðandi notendanafnið hennar Thulesol: Þetta er óhemju lúmsk bjórauglýsing :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok