Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Ræða Powells fyrir framan Öryggisráðið

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, eru þetta Tyrkir í Kebabhúsinu? Ég hélt alltaf að þetta væru Norður-Afríkanar (en kunni aldrei almennilega við að spyrja).

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cassia: Þér þukir semsagt allt í lagi ef ég aðlagast ekki og ákveð að hegða mér algerlega gegn öllu sem þykir rétt (samanber fjörugt dæmi þitt, með kjúklingablóði og því öllu) hér á landi, en ætlast til þess að aðrir geri það? Hvers vegna á ekki eitt yfir alla að ganga? Annars var ég að spá, hvað ef einhver myndi nú flytja til lands þar sem það væri sjálfsagður hluti menningar að grýta konur fyrir hórdóm, eða þá að nauðga hvaða konu sem er ekki klædd eftir einhverjum sérstökum reglum? Ber...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Málið er bara að þessi einstöku atriði segja ekkert um sjálfa trúna. Svo maður taki gömul dæmi, þá segja krossferðirnar, Rannsóknarrétturinn á Spáni, og nornabrennurnar um alla Evrópu alls ekki neitt um kristna trú, hvorki nú né þá. Ekki heldur bókabrennur og árásir á fóstureyðingastöðvar sem einstaka kristnir menn stunda í BNA. Klanið segir okkur ekkert um kristna trú, og ekki heldur Snorri í Betel. Allt þetta veit fólk og tekur sem sjálfsögðum hlut. Hvers vegna fá ekki önnur trúarbrögð...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Kexpakki: Ég er alveg að skilja pointið. Þú ert hins vegar ekki að fatta, að það eru ekki dæmi um fordóma gagnvart einum eða neinum að neita að passa tösku ókunnugs manns á flugvelli, og ekki heldur að treysta ekki ókunnugum manni fyrir húslyklunum sínum.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég hlýt að þekkja hann; í dæminu tókstu sérstaklega fram að þetta væri hálfviti og þar að auki uppdópaður. Hins vegar er alveg ómögulegt að vita hvort einhver sé hálfviti eða ekki nema maður þekki viðkomandi. Ef ég þekkti hann ekki, þá myndi ég heldur ekki treysta honum fyrir lyklunum, þar sem þá er þetta ókunnugur maður - og maður ætti einfaldlega ekki að treysta ókunnugum fyrir lyklunum sínum, hvernig sem þeir líta út.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sorrý, Kexpakki, en hvorugt dæmið sem þú nefnir er dæmi um fordóma. Dæmið með skeggjaða arabanum og töskunni hans: Maður á aldrei að geyma tösku fyrir ókunnuga á flugvöllum. Það er álíka gáfulegt og að bjóðast til að taka tösku einhvers annars í gegnum tollinn. Dæmið með uppdópaða hálvitan og húslyklana: Ég myndi aldrei treysta einhverjum ókunnugum fyrir húslyklunum mínum ótilneyddur, jafnvel þótt hann vissi ekki hvar ég ætti heima. Slíkt væri afar kjánalegt og sá sem stundar það á ekki nema...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þetta var góður punktur, með það hvort nýfædd börn eigi að teljast nýbúar eða ekki. Alveg rétt, þau eru nýkomin til landsins. Þetta þarf maður að leggja á minnið.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Æ, ef við ætlum að fara að týna til ofbeldishneigð trúflokka, hvers vegna þá ekki að minnast á gyðingana sem réðust á blaðbera, vegna þess að blaðberinn var með einhvern bækling þar sem konan var ekki klædd eftir reglum þessa gyðingahóps? En er ekki frekar kjánalegt að vera þylja upp einhver einstök dæmi?

Re: Cheech & Chong\'s The Corsican Brothers (1984)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þá væntanlega gamla hasshausinn?

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
gunnisj: “Þú getur ekki hatað engann.” Hvaða “hyldýpi af heimsku” (svo maður vitni aftur í þetta ágæta orðalag) er þetta eiginlega? Hvers vegna er ekki hægt að komast hjá því að hata einhvern?

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
olza: Hvað ertu eiginlega að reyna að réttlæta með þessu? Ertu í alvöru að reyna að réttlæta eigin rasisma með rasisma annarra? Hvernig dettur fólki slík vitleysa í hug?

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Badmf: Á “Svertingjar eru rasistar, jafnmiklir rasistar og hvíti maðurinn” að heita rökstuðningur fyrir fullyrðingunni “Það er ekkert alltaf þannig að fólk sem hefur ekkert til að státa sig af eru rasistar”? Ég ætla rétt að vona ekki. Það er hins vegar oftar en ekki tilfellið, sýnist mér, að þeir sem eru virkilega rasískir eða eru uppfullir af þjóðrembu (sem er allt annað en þjóðernishyggja) hafa ferlega lítið annað til að hreykja sér af, a.m.k. eftir eigin mati. Rasisma er nær...

Re: Bandaríkjamenn geta bara þrifið upp sinn eigin skít

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Er einhver munur á “hinum frjálsa heimi” og “hinum vestræna heimi”? :) Hvers vegna ertu annars svo viss um að í Írak muni rísa lýðveldi sem virðir mannréttindi? Sennilegast munu stjórnvöld þar ekki stefna að innrás í nálæg ríki, en hvort þau virði mannréttindi? Ég myndi a.m.k. ekki fagna því of snemma. Við höfum t.d. lýðveldi sem ofsækir Kúrda á skipulegan hátt - nefnilega Tyrkland, bandamann okkar og vin. Hvers vegna ætti það lýðveldi sem tekur við af Saddam að vera eitthvað skárri en...

Re: Bandaríkjamenn geta bara þrifið upp sinn eigin skít

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nú voru fleiri þjóðir með í að styrkja Saddam, margar hverjar í NATO. Ef þeir væru ekki að draga NATO, SÞ og svo framvegis inn í þetta, þá væriru sennilega vælandi yfir því að þeir gerðu bara eins og þeim sýndist, án þess að spyrja bandamenn sína eða Sameinuðu þjóðirnar.<br><br>“Disobey … it's allowed”

Re: Bandaríkjamenn geta bara þrifið upp sinn eigin skít

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“BNA kom Saddam til valda, studdi hann með dáðum, peningum og vopnum. Útvegaði honum m.a. tækni til að framleiða kjarnorkuvopn, efnavopn o.fl. Þeir geta bara drullast til að þrífa upp skítinn eftir sig!” Og hvað í ósköpunum sýnist þér að þeir séu að reyna að gera? Samkvæmt fréttum um daginn var Hussein gert tilboð: Farðu úr landi, farðu frá völdum - og þá verður engin innrás. Það hljómar dálítið undarlega að annars vegar skamma þá fyrir að hafa komið Saddam til valda (sem er þó varla nema...

Re: Ok nú er nóg komið af vitleysu í ykkur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
thulesol: "Þess vegna gremst mörgum aröbum að svartir gerist múslimar, afþví að arabar hafa mikla fordóma gegn svörtum [...] " Eða kannske vegna þess að svartir ganga oftar en ekki í Nation of Islam þegar þeir gerast múslimar, þar sem kennt er að svarti maðurinn sé guð en hvíti maðurinn (þ.á.m. Arabar) sé djöfullinn (lauslega). Mér skilst að almennt og yfirleitt eru múslimar ekkert sérlega hrifnir af því að þeirra trú sé tengd við, öllu heldur notuð af NoI, alveg eins og kristnir eru almennt...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cassia: Ef þú vilt hætta, nú þá hættiru bara. En samt, því ég er nú bæði forvitinn og þrætugjarn: Ertu búin að falla frá þeirri hugmynd að fólki beri að aðlagast og hegða sér samkvæmt þeim siðum og venjum sem eru ríkjandi þar sem það flytur?

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Apache: Ertu að kalla mig rasista? Það er næstum því verra en það sem idf var næstum því að kalla mig - “lögfræðinema”. En það er svosem ekki við öðru að búast frá þér. Hvort sem menn hafi haft stöðu flóttamanns eða ekki, þá hafa komið hingað hópar frá stríðshrjáðum svæðum - t.d. Víetnam og Júgóslavíu. Ungverjarnir sem Nuff minntist á voru einnig flóttamenn - voru á flótta eftir að Sovétvélin barði á einhverri linkind í Ungverjalandi (nú man ég ekki árið, en minnir annað hvort ‘56 eða ’64)....

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
idf: Nei í báðum tilfellum. Ég er, almennt og yfirleitt, ekki “svart og hvítt”-maður, og ég er ekki í lögfræði. Mér er hins vegar meinilla við að giska á tölur ef ég veit ekki einu sinni á hvaða svæði ég ætti að giska. Ef ég væri sjómaður, þá væri mér meinilla við að fara að veiða ef ég vissi ekki einu sinni hvar væri best að finna fiskinn.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cassia: “þú getur ekki BARA umgengist íslendinga og hagað þér nákvæmlega eins og þú gerir á Íslandi.” Hvers vegna ekki, ef aðstæður bjóða upp á það? Segjum að ég gæti fengið eitt hundrað Íslendinga til að taka saman höndum og kaupa væna landspildu í Tælandi, þar sem við ætlum að stofna lítið samyrkjubú, rækta t.d. maís eða hrísgrjón og gera eina tilraunina enn með þetta sambúðarform. Á meðan við greiðum tælenska ríkinu þann skatt sem því ber og erum annars ekki að valda neinum óþægindum,...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Hvaða tregðu ertu að tala um? Hvenær neitaði ég því að það væru vandamál til staðar?

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
idf: Ertu að tala um “þröngvun í hjónabands”-póstinn? Ég er almennt ekki hrifinn af því að giska á tölur þegar það eru tölur sem skipta máli. Annað hvort vil ég hafa tölurnar nokkurn veginn á hreinu (síðan má auðvitað skeika, mismikið eftir því hvað um er að ræða) eða ekki. Ágiskanir eru mér ekki vel að skapi, nema þegar ég held að ég viti svona nokkurn veginn á hvaða slóðum maður ætti að vera.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ussususs, lhg, þetta er ljótt að heyra! Þú ert alvarleg ógn við stöðugleika í Kanada!

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cassia: Það munu semsagt koma upp hræðilegar flækjur ef einhver múslimi óskar einhverjum kristnum ekki gleðilegra jóla hér á landi? Sá menningarárekstur að mæta ekki á Þorrablót vinnustaðarins á örugglega eftir að hafa í för með sér hryllileg vandamál. Annars er ég að velta einu fyrir mér varðandi þessa setningu: “Manni ber að haga sér í samræmi við menningu, siði og venjur í nýja landinu.” Nú gildir þetta ekki fyrir mig - mér ber ekki að haga mér í samræmi við þá menningu, siði og venjur...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Hvað hefur þetta með “tvo flokka siðferðis” að gera? Eftir á að hyggja áttaði ég mig raunar að það eru til tveir flokkar; algilt siðferði og staðbundið/ríkjandi siðferði. Hins vegar ert þú ekki að tala um það; í þeim skilningi sem þú ert að leggja í hugtakið “tveir flokkar siðferðis” er það bull og vitleysa að tala um slíkt. Þótt sumt af því sem við teljum rangt sé ekki bannað með lögum, þá segir það ekkert um tvo flokka siðferðis. Siðferði eru þær reglur, skráðar sem óskráðar,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok