Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: ESB; Hið nýja illa afl !

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Talandi um gyðingaofsóknir í þá gömlu góðu, þá þótti Caesari sérstök ástæða til þess að banna ofsóknir gegn alls konar sértrúarsöfnuðum, eins og t.d. Gyðingum. Þegar líða tók á keisaratímann og menn tóku að taka keisara í guðatölu, þá fengu Gyðingar (oftast) sérstaka undanþágu (og á meðan kristnir voru aðeins álitnir hreyfing innan Gyðingdóms, þá fengu þeir líka að vera meira og minna í friði, a.m.k. hvað Rómverja varðaði). Um Gyðingahatur meðal svartra í BNA: Ósköp skiljanlegt í ljósi...

Re: Öxulveldi hins illa (Bandaríkin, Bretland, Ísrael)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
idf: Fínt að hafa þetta. Hugsaðu þér nú hvað það væri leiðinlegt ef við (hin kláru) hefðum ekki þau (hin heimsku) til að horfa niður á.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: “Siðferði skiptist í tvo flokka, sum eru lög hjá komandi hóp innflytjenda. Þú veist væntanlega að lög islams ganga fram yfir ríkjandi lög, hjá sumum einstaklingum.” Skiptist siðferði í tvo flokka? Hvaða bull er þetta nú? Hvaða tveir flokkar skyldu það vera? Já, ég veit alveg að lög íslams ganga fram yfir önnur lög hjá álitlegum hóp innflytjenda. Lög íslams eru hins vegar ekki “siðferðislög”, þar sem þau ná yfir eitt og annað sem siðferðið nær ekki yfir, eins og t.d. hvaða mat má...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
LenaPena: Já já. 1 flóttamaður síðan Ísland byggðist. Það sem er svo leiðinlegt við ykkur “and-rasista” er oftar en ekki það, að þið grípið til alls konar bellibragða - eins og að ýkja hluti úr hófi fram. Ég veit ekki betur, en að fólkið sem er að reka Indókína (og hefur gert ágætlega síðustu ár og áratug(i)) séu víetnamskir flóttamenn. Hingað komu líka hópar frá fyrrv. Júgóslavíu þegar stríðið þar stóð sem hæst. Nokkrar fjölskyldur sem var m.a. tekið á móti af utanríkisráðherranum sjálfum...

Re: Heimsku bandaríkjamenn,ísraelar og bretar!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
gmaria: Ha? Ertu ósammála því, að saga Palestínu og Ísraels sé of flókin til að breyta í barnasögu fyrir eins árs gamla krakka, eins og kjarri1 reyndi að gera? Ef þú lest bútinn um Palestínumálið, og virðir orðanotkun og setningamyndun sérstaklega vel fyrir þér, tekur líka tillit til gríðarlegrar einföldunar (og jafnvel rangfærslna, en látum það liggja á milli hluta) þá ættiru að geta tekið eftir því að orðalagið er eins og klippt útúr smábarnasögu (ég ætti að vita það, ég er ennþá að lesa...

Re: Heimsku bandaríkjamenn,ísraelar og bretar!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
afmæli: Vinsamlegast merktu með hástöfum (þ.e. ýttá Caps Lock og “insert” takkann á lyklaborðinu þínu og skrifaðu yfir) það sem þér þykir benda til þess að ég hafi verið að réttlæta fjöldamorð á einum eða neinum í eftirfarandi texta: “Tek undir með tinkywinky; ferill þjóðar er allt annað en ferill eins manns/þjóðhöfðinga. Þjóð á sér nokkra höfðingja á fimmtíu árum (oftast), en einn þjóðhöfðingi á sér yfirleitt ekki nema einn höfðingja - sig sjálfan. BNA í dag vörpuðu engum sprengjum á...

Re: SBS: Ritþjófur eða misskilinn snillingur?

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“ ”The film's highlight is a rousing battle sequence that consumes the final 40 minutes and includes, among other things, a massive conflict between Jedi, clones, and battle androids; a two-on-one lightsaber duel; …“ ”Það leiðir til endaatriðsins sem er um 40 mínútur og inniheldur nánast allt sem Star Wars getur innihaldið, skrímsli, klónaher, vélmennaher, tugir Jedi meistara … “ ” Ein ábending: Þetta er ekki skoðun höfundar; þetta er “climax”, hápunktur eða endaatriði myndarinnar. Það er...

Re: Heimsku bandaríkjamenn,ísraelar og bretar!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cerebos: Tek undir með tinkywinky; ferill þjóðar er allt annað en ferill eins manns/þjóðhöfðinga. Þjóð á sér nokkra höfðingja á fimmtíu árum (oftast), en einn þjóðhöfðingi á sér yfirleitt ekki nema einn höfðingja - sig sjálfan. BNA í dag vörpuðu engum sprengjum á Hiroshima og Nagasaki.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þægilegt að einfalda hluti. Hvenær sagði ég að “allt sé gott bara ef allir fara að lögum” eða eitthvað í þá áttina? Hins vegar eru málin ásættanleg ef fólk fer að lögum og þeir sem gera það ekki fara í dsjeilið. Ég giska að ef menn láta sömu lög gilda fyrir alla, og hætta að taka mark á “menningarafsökunum” (“Í okkar menningu eru þær bara að biðja um það ef þær eru í pilsi” og svo framvegis), þá eigi þetta eftir að síast inn. Það tekur eðlilega tíma.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þá á þessu ári (2003)?

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Siðferðislög”? Ertu nú farinn að búa til hugtök? Í hverju felst einföldunin?

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Einu alvarlegu árekstrarnir sem skapast eru þeir sem má forðast ef fólk fer eftir lögum. Ef því er komið inn, þá er ekkert að því, þótt múslimar haldi áfram að vera múslimar, hafi sitt ramadan, biðji 5 sinnum á dag og skipuleggji hjónabönd barna sinna. “Það er gefið að flóttamenn og innflytjendur fara oft á tíðum á kerfið.” Ekkert mál að koma í veg fyrir það, t.d. með því að gera fólki almennt erfitt að hanga á bótum: “Hérna er starf; þú tekur því eða missir bæturnar”.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Cassia: Víst myndi ég haga mér eins og týpiskur Íslendingur, svo framarlega sem ég væri ekki að brjóta nein lög með því. Ef það væri nóg af Íslendingum á svæðinu, þá er aldrei að vita nema að maður myndi mæta á þorrablót og svona. Ég myndi halda upp á jól að íslenskum sið, ég myndi fagna nýju ári fyrsta janúar, en ekki í febrúar eða mars (eða hvenær sem Tælendingar fagna annars sínu nýja ári). Annars væri ágætt ef þú myndir einfaldlega svara spurningunni sem þú þykist vera að svara. Hvers...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
idf: Þú ert ólæs, sé ég. Annað hvort það, eða þá að þú átt erfitt með að skilja hvað það þýðir að haga sér samkvæmt lögum.

Re: ESB; Hið nýja illa afl !

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég er ekki að segja að allir eigi að tala rétt, síður en svo. En ef menn ætla að vera með einhverjar sérviskur (sem má líka kalla tilgerð, þegar maður er í fúlu skapi), hvort sem er þérun eða z-notkun, þá ættu þeir að gera það rétt.

Re: Árni Johnsen í jeilið!!!!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvers vegna ættu menn að fara í fangelsi fyrir að stela pening ef þeir hafa ekki beitt neinn ofbeldi eða skemmt eigur annarra? Hvað græðist á því? Eru menn öruggari þegar þeir fara út að ganga? Eru eigur manna á heimilum þeirra og í bílum þeirra óhultari? Mun þjófurinn verða betri við það að sitja í fangelsi? Svo ég svari spurningunum mínum sjálfur: Það græðist ekkert á því; nei, menn eru ekki öruggari; nei, eigur manna eru ekki óhultari; nei, hann mun ekki batna. Það græðist semsagt ekkert...

Re: Árni Johnsen í jeilið!!!!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvers vegna ættu menn að fara í fangelsi fyrir að stela pening ef þeir hafa ekki beitt neinn ofbeldi eða skemmt eigur annarra? Hvað græðist á því? Eru menn öruggari þegar þeir fara út að ganga? Eru eigur manna á heimilum þeirra og í bílum þeirra óhultari? Mun þjófurinn verða betri við það að sitja í fangelsi? Svo ég svari spurningunum mínum sjálfur: Það græðist ekkert á því; nei, menn eru ekki öruggari; nei, eigur manna eru ekki óhultari; nei, hann mun ekki batna.<br><br>“Disobey … it's allowed”

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Hvers vegna ættu menn að “samlagast”? Hvers vegna er ekki nóg að fólk hagi sér samkvæmt lögum og borgi skatta?

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nú, þá er það bara í “Litla-Pakistan”, borgar skatta og svo framvegis. Alveg eins og Kínverjar og Ítalir og hérumbil allir sem hafa flutt til BNA hafa gert.

Re: Heimsku bandaríkjamenn,ísraelar og bretar!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
gmaria: Einfaldlega ósammála? Ertu semsagt ósammála því, að það lýsi gífurlegri vanþekkingu á málum Ísraels-Palestínu að koma með fullyrðingar eins og þessar: “Finnst ykkur réttlátt ef að allt í einu kæmu papar til íslands með stóran her og settist að á Íslandi. Og myndu hertaka 80% af íslandi og henda öllum íslendingum upp í óbyggðir vegna þess að fyrir 1000 árum bjuggu þeir þarna.” “Bandaríkjamenn og önnur ríki réðust inn í Palestínu vegna þess að einhvern tíma fyrir nokkur þúsund árum...

Re: ESB; Hið nýja illa afl !

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
GARafAR: Þú ættir ekki að líta á þetta sem mínar kröfur; þetta eru kröfur sem þú ættir að gera til þín sjálfs.

Re: ESB; Hið nýja illa afl !

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef menn ætla að vera með þá tilgerð að þéra, þá er lágmarks krafa að það sé gert rétt.

Re: ESB; Hið nýja illa afl !

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
idf: “Af hverju hjálpuðu Frakkar Saddam að byggja kjarnorkuver, var það ”þróunarhjálp?“ ” Er þetta verið sem Ísraelar sprengdu áttatíu-og-eitthvað þegar Írakar voru uppteknir við að brytja niður Írani og voru ekkert svo uppteknir af Ísrael (býst maður við)? Það mætti annars líka segja það sama um Bandaríkin. Hvers vegna seldu þeir Írökum öll þessi vopn - varla var það þróunaraðstoð? Að segja Frakka vera mestu sérhagsmunaskíthæla sem um getur er dáldið djúpt í árinni tekið - og jafnvel...

Re: ESB; Hið nýja illa afl !

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum

Re: Um Sönnun.

í Heimspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, það er galli kerfanna, að þau eru “content-neutral”? Innihaldið skiptir engu, bara á meðan að formið er rétt. Formlega séð getur maður sannað að tunglið sé úr osti, að Jörðin sé flöt, og svo framvegis og framvegis. Það er væntanlega vísindanna að sýna fram á, hvað sé til og hvernig það sé, og þar með hvernig eigi að nota það í röksemdafærslum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok