Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Sjálfstæðisflokkurinn og einstaklingsfrelsið.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Máltæki eru ekki rök. Hins vegar má benda á ágæta dæmisögu sem flestir ættu að hafa lesið a.m.k. einusinni: Það er sagan af Nasreddin, sem ákvað að hrekkja konu sína aðeins, og prófa hana aðeins í leiðinni, og trúði henni fyrir leyndarmáli. Leyndarmálið var það, að hann hafði verpt eggi. Þegar sagan var komin til soldánsins átti hann að hafa verpt sexhundruð níutíu og níu eggjum. Hins vegar veit ég fyrir víst að þetta er eintóm lygi sem þú segir þar sem ég þekki son Davíðs, og veit m.a. hvar...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Ýkjurnar og útúrsnúningurinn var varðandi það að segja að ég væri að greina allt niður í smáflokka, og þar fram eftir götunum. Þessi orð áttu ekki við neitt annað. Endilega bentu mér á mínar ýkjur og útúrsnúninga.

Re: Huggun heimspekinnar

í Heimspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Jæja, þá það. Ég hef sennilegast verið of snemma á ferðinni, þá, a.m.k. sá ég aldrei neinn miða. Annars er Celtic Cross við Hverfisgötuna, frekar neðarlega ef ég man rétt. Ekkert sérlega skemmtilegur staður. Alveg týpiskt, annars: Maður ætlar að vera voða félagslyndur, eitthvað, og þá er einhver skyndibreyting á dagskrá svo maður missir af öllu.

“Disobey … it's allowed”

Re: Sjálfstæðisflokkurinn og einstaklingsfrelsið.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Je minn eini. Alveg er það ótrúlegt, hvað fólk þreytist aldrei á að dreifa ómerkilegum og heimskulegum kjaftasögum sem einungis fábjánum gæti dottið í hug að trúa. Í alvöru, september, ekki trúiru svona fábjánabulli?

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Það þarf þá alla vega meiri fúlgu til að gera það þess virði.” Semsagt; fangelsisdómar ýta undir að menn steli meiru? Þú lætur annars bara vita ef þú nennir þessu ekki.

Re: Huggun heimspekinnar

í Heimspeki fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þegar ég mætti, þá var bara allt lokað á Dillon. “Verið að hækka gólf” eða eitthvað í þá áttina. Eru menn komnir með nýjan tíma - eða var ég bara að misskilja eitthvað?

“Disobey … it's allowed”

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er kannske fæling, en ef maður þykist viss um að koma vænni fúlgu undan, þá gæti manni þótt það þess virði?

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Ef þetta er ekki útaf útliti á hverju í fjandanum getur það þá verið ef þú þekkir og veist ekkert um náungan.” Kexpakki: Menn eru einfaldlega með fordóma gegn svo ótal mörgu öðru en fólki. Það eru t.d. til fordómar gegn músík (“Pff, þungarokk er prump”), stjórnmálaskoðun (“Frjálshyggja er algert bull”). Ég er ekki alveg viss um að þú áttir þig á því hvað fordómar eru. Fordómar eru fyrirframdómar, þ.e. það er dæmt um gildi einhvers án þess að þekkja það nægilega vel. Fordómar eru hins vegar...

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Ef þeir færu ekki í steininn, þá gæti maðurinn hugsað sem svo að ef hann steli bara nógu helvíti miklu, þá hljóti það ekki allt að sannast og eftir að hann er búinn að segja úpps og borga til baka allt sem þeir vissu um, þá stingur hann bara af til útlanda með allar millurnar sem þeir vissu ekki um.” En það gæti gerst hvort eð er. 'Hva, tjilla bara í jeilinu [svona brotamenn fara á aðeins huggulegri stað en Litla-Hraun, skilst mér] í tvö-þrjú ár - ef það! - svo fer ég út með það sem þeim...

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er aðeins meira á spýtunni en þetta. Að borga allt til baka, jafnvel með einhverjum sektum er nefnilega ekki allt og sumt. Hver helduru að ráði mann í einhvers konar háa stöðu þegar hann er með eitthvað á borð við þetta á skránni? Hver helduru að hugsi “Já, hann X stal svo og svo miklum pening með svikum, en ég ætla nú samt að treysta honum”? Það er ekki bara verið að slá á hendina og segja “Skamm skamm!”. Fangelsisvist á ekki eftir að breyta neinu, hún er algerlega óþörf til að fæla...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Ég er ekki að tala um að greina allt í smáflokka. Vertu ekki með svona kjánalegan útúrsnúning og ýkjur. Það sem ég ER hins vegar að tala gegn er þessi tilhneiging til að hafa flokkana of stóra, tala um túlkanir á íslam eins og það sé aðeins ein túlkun til (eins og idf virðist a.m.k. vera að gera, og mér sýnist þú fara ansi nálægt því líka). Slíkt er ekkert nema heimskuleg einföldun.

Re: World War III

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Á Deigluna með svona rusl. Hvers vegna stilliru þessu annars svona upp - Saddam vs. George? Ég held a.m.k. með hvorugum - ef ég á annað borð leyfi mér að gerast svo vúlgar að segjast halda með einhverjum í þessu máli, þá held ég með almenningi í Írak.

“Disobey … it's allowed”

Re: Traust stjórnmálamanna

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Algjörlega fáránlegur dómur, og í engu samræmi við dóma í þó margfalt alvarlegri málum, þar sem einhver verður raunverulega fyrir skaða sem er ekki hægt að bæta með einföldum sektum og þvíumlíku. Hvað í ósköpunum ætli græðist svo á því að hann fari í fangelsi? Ætli hann muni þá fyrst fatta “Úbbs, ég gerði eitthvað rangt!”? Það þykir mér afar ólíklegt - menn gera það sjaldnast í öðrum fangelsum. Hvaða réttlætingar eru annars fyrir því að setja menn í fangelsi? Ég kem aðeins auga á eina sem ég...

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: “Þegar fólk talar um trú, þá er það að tala um hvernig hún er túlkuð, ekki trúna í sjálfri sér.” Nei, nefnilega ekki. Ég veit ekki hvernig þú talar um trúarbrögð, en ef þú gerir það á þennan hátt, þá ertu ekki að tala “á réttan hátt”. Af hverri trú eru til þó nokkuð margar túlkanir - stundum næstum því jafn margar og fylgjendurnir eru margir. Hvaða túlkun er þá réttust? Hvaða túlkun eigum við að miða við þegar við erum að tala um t.d. kristni? Eigum við kannske bara að miða við...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Kexpakki: Það dæma ekki allir eftir útliti. Hugsanlega eru allir með fordóma ef einhverju tagi, en þeir fordómar þurfa ekki endilega að byggjast á útliti. Þetta er furðulega léleg alhæfing. Ef þú ætlar að koma með dæmi um fordóma, í öllum bænum reyndu þá að koma með almennileg dæmi. Þér hefur ekki ennþá tekist það.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Moondance: Hvernig tekst þér að komast að þeirri niðurstöðu útfrá þessu: “Enn og aftur sýna múslímar hvernig trú þeirra er beintengd ofbeldi.”? Ég skil þetta a.m.k. þannig að verið sé að alhæfa um trúna sjálfa, en ekki bara hvernig staðan sé í dag.

Re: Ræða Powells fyrir framan Öryggisráðið

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mér þótti eiginlega bara of augljóst að þeir væru frá Tyrklandi. Mér þótti líka ferlega öruggt að annað hvort gaurinn sem er með Devito's eða Madonna (við Rauðarárstíg) væri Ítali - svo reyndist hann bara vera frá annað hvort Túnis eða Marokkó (ég er alveg ferlegur með að muna svona lagað!). Það var nú ekki annað en almennt vantraust á eigið “innsæi” og “fyrstu hugmynd” sem dró mig til þess að giska á að þeir væru ekki Tyrkjar. Hvaðan sem þeir eru, þá er a.m.k. gott að eta hjá þeim.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Kexpakki: Ég er ósköp einfaldlega að benda þér á, að hvorugt dæmið sem þú tókst geti talist merki um fordóma. Og nei, þótt einhver svertingi nauðgi og drepi hvern einn og einasta fjölskyldumeðlim manns, þá er ekki sjálfgefið að maður verði rasisti fyrir vikið. Vitlaus og órökvís maður gæti orðið það, ekki skynsamari maður.

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það sama er ekki látið gilda, a.m.k. ekki í kollinum á idf, þar sem hann er að alhæfa um sjálfa trúna, en ekki trúna á einhverjum einstökum stað eða stund.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
geiri85: Þetta er einfaldlega ekki satt. Það hefur aldrei verið talað um “dökkhærð villidýr”; hins vegar lofuðu nasistarnir “ljóshærðu villidýrin” sín… Annars var það klikk hjá þér að segja ljóshærða vera skemmtilegri og fallegri - það hefði verið betra að segja ykkur vera gáfaðri og góðhjartaðri, meira umhugað um kvenréttindi og áfram. Kaldhæðni bítur síðan ekki á rasista. Til að skilja kaldhæðni þarf maður nefnilega að vera a.m.k. meðalmaður að greind…

Re: Flóttamenn rústa skólakerfinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, já, krossferðirnar segja eitt og annað um siðferðið þá, á þeim stöðum sem á annað borð lögðu upp í krossferðir, og sama má segja um allt hitt. En þær segja ekki eitt aukatekið orð um sjálfa trúna eins og hún var þá - eins og ég sagði, ekki frekar en bókabrennur og árásir á stöðvar sem bjóða fóstureyðingar segja neitt um trúna í dag. Þetta geta menn auðveldlega viðurkennt þegar kristnin á í hlut; hvers vegna geta þeir ekki líka viðurkennt það þegar íslam á hlut í máli? Hvaða máli skiptir...

Re: Taugaveiklun Davíðs Oddssonar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
vikari: Ég endurtek: Um að gera að benda á, að það er engin sérstök ástæða til að taka öllu sem ég segi bókstaflega - ég gæti verið að grínast. En ég vil ekki svipta þig (og ykkur hin) þeirri ánægju sem fylgir því að brjóta heilann um það, hvort einhver sé að grínast eða ekki. Ég skal afsaka þínar villur ef þú afsakar mínar.

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þeir hörðustu rasistar sem ég þekki í Reykjavík eru langflestir utan af landi. Kannske eruð þið bara svona lunkin við að losa ykkur við heimskingjana - “Reykjavík er ruslakista Íslands”?

Re: Taugaveiklun Davíðs Oddssonar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nú var DO ekki einn í þessu, HÁ fékk a.m.k. að vera með á myndinni, og ætli fleiri úr ríkisstjórninni hafi ekki líka verið með í ráðum (a.m.k. félagsmálaráðherra). Framsóknarmenn hafa síðan löngum verið hrifnir af sveitinni og landsbyggðinni, og ég held að báðir flokkarnir líti á það sem aðalatriði að halda öllu landinu í byggð. Það er engin hætta á því (fyrir utan stórfelldar náttúruhamfarir, auðvitað) að Reykjavík leggist í auðn. Sama virðist ekki vera hægt að segja um landsbyggðina, eða...

Re: Rasismi á Íslandi!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hey, hvað meinaru með að segjast aldrei hafa séð góða íslenska mynd? Hefuru ekki séð ‘Með allt á hreinu’?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok